Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

20. október 2023

Mannauðskönnunin Stofnun ársins 2023 að hefjast

Nú er könnunin Stofnun ársins 2023 að hefjast. Farið verður rólega af stað en félagsfólk má svo flest eiga von á tölvupósti í næstu viku um þátttöku í könnuninni. Félagsfólk getur einnig nálgast tengil á könnunina inn á „Mínum síðum“ Sameykis.

Stofnun ársins er viðamikil mannauðs- og launakönnun. Tilgangur hennar er að styrkja mannauðsmál og starfsumhverfi starfsfólks í opinberri þjónustu. Könnunin veitir ítarlegar upplýsingar um stöðu mála, þ.e. styrkleika og áskoranir í starfsumhverfinu og mannauðsmálum sem nýta má til umbótastarfs á vinnustaðnum. Það er okkar trú að könnunin sé jákvætt innlegg í starfsemi vinnustaða fyrir starfsfólk og þá sem þiggja opinbera þjónustu og samfélaginu öllu til hagsbóta. Félagsfólk Sameykis gefst einnig tækifæri til þess að svara um kjör sín í könnuninni.


Frá Stofnun ársins 2022 sem haldin var á Hótel Hilton Reykjavik Nordica í mars 2023.


Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til tæplega 40.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Almennt er miðað við að þátttakendur séu í a.m.k. 20% starfshlutfalli og hafi starfað á vinnustaðnum í þrjá mánuði eða lengur. Þetta viðmið er notað svo svarendur séu betur í stakk búnir til að meta starfsumhverfi sitt með áreiðanlegum hætti.

Gallup á Íslandi sér alfarið um vinnslu og framkvæmd könnunarinnar, þ.e. gagnaöflun, varðveislu gagna og skýrslugerð.

Dettur þú í lukkupottinn?
Úr hópi svarenda Sameykis félaga verða alls dregnir 12 vinningar úr innsendum svörum:
• Tvö gjafabréf frá Icelandair, að verðmæti 60.000.- kr. hvert
• Fjögur gjafakort í Hörpuna, að verðmæti 30.000.- kr. hvert
• Helgardvöl í orlofshúsum félagsins, samtals fimm vinningar
• Vikudvöl í orlofshúsum félagsins á Spáni, einn vinningur

Mundu að geyma happdrættisnúmerið þitt sem kemur fram í tölvupóstbréfinu sem fylgir könnuninni. Vinningsnúmer verða birt í febrúar á vef Sameykis. Dregið er úr innsendum svörum.

Nánari upplýsingar um könnunina og framkvæmd hennar má sjá hér.