2. nóvember 2023
Gagnrýnir orð forsætisráðherra um jafnrétti
Katrín Jakobsdóttir í hljóðstofu RÚV. Ljósmynd/RÚV
Formaður Sameykis skrifar pistil á vef Vísi undir heitinu Katrín og kvennabaráttan. Forsætisráðherra sagði í viðtali í þættinum Segðu mér við útvarpssjóra að hún eigi sér draum að fullu jafnrétti verði náð árið 2030 í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Þórarinn Eyfjörð spyr í pistli sínum hvað standi í veginum og það þurfi framkvæmd til að láta drauma sína rætast. Hann segir, að á meðan hana dreymir um jafnrétti sé ríkissjórn hennar að skera niður í fjárveitingum til heilbrigðiskerfisins og standi fyrir niðurskurði til velferðarmála.
Þá segir hann í pistlinum að niðurskurður og uppsagnir opinberra starfsmanna sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur standi fyrir bitni aðallega á störfum kvenna sem starfa í grunnþjónustunni og í framlínunni. Það sé varla neitt jafnrétti né réttlæti til í því.