Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

14. nóvember 2023

Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu

Mynd úr aðgerðavakningu Vinnueftirlitsins

Vinnueftirlitið hefur boðað aðgerðavakningu undir yfirskriftinni #Tökum höndum saman: Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu.

Markmiðið er að vekja athygli á því að heilbrigð vinnustaðamenning stuðlar að öryggi og vellíðan starfsfólks og er ein áhrifaríkasta forvörnin gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. Hún hefur auk þess jákvæð áhrif á árangur og orðspor vinnustaða segir á vef Vinnueftirlitsins.