Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. janúar 2024

Þjóðfáni Palestínu dreginn að húni á BSRB-húsinu

Mánudaginn 15. janúar sl. voru 100 dagar liðnir frá upphafi núverandi hernaðaraðgerða Ísraela á hendur Palestínumönnum á Gaza, sem hófust í kjölfar árasar Hamas-samtakanna 7. október. Á þessu tímabili hefur her Ísraels drepið yfir 30.000 íbúa Palestínu, þar á af 12 - 15.000 börn, rústað nauðsynlegum innviðum og hrakið nær alla íbúa Gaza á flótta á mjög takmörkuðu landsvæði sem hefur verið í herkví sl. 17 ár.

Af því tilefni ákváðu heildarsamtök og félög launafólks að sýna samstöðu með því að flagga palestínska fánanum. Var fáninn dreginn að húni kl. 12:00 á hádegi hjá ASÍ, BSRB og KÍ.

Verkalýðshreyfingin er hreyfing lýðræðis, mannréttinda og friðar á alþjóðavísu og fjöldi systursamtaka innan PSI um gervallan heim beita nú einnig afli sínu til að binda enda á hörmungarnar. PSI hefur kallað eftir vopnahléi frá upphafi, enda fjöldi opinberra starfsmanna verið drepnir í hernaðaraðgerðum Ísraels.

Ekkert útlit er fyrir hlé á núverandi árásum, auk þess sem spennan eykst á Vesturbakkanum dag frá degi.

„Með þessari táknrænu aðgerð, þegar 100 dagar eru liðnir frá upphafi átakanna vilja samtökin sýna almenningi í Palestínu stuðning auk þess sem við skorum á íslensk stjórnvöld að beita sér af auknum þunga í þágu lausnar á átökunum, á hvern þann hátt sem mögulegt er,“ segir á vef BSRB.

Lesa má sameiginlega yfirlýsingu ASÍ, KÍ og BSRB hér.

 

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd