Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

23. apríl 2024

Kjaradeilu við ríkið vísað til ríkissáttasemjara

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd þess ákvað á fundi sínum í dag að vísa viðræðum um endurnýjun kjarasamninga Sameykis og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs til ríkissáttasemjara. Samningsaðilar hafa fundað í kjaradeilunni síðan í febrúar og telja fulltrúar samninganefndar Sameykis fullreynt að ná samkomulagi milli aðila án milligöngu ríkissáttasemjara.

Sameyki lagði fram kröfugerð í febrúar síðastliðnum. Félagsfólk sem samið verður fyrir telur um 4500 sem starfa hjá ríkinu.