2. maí 2024
Komið með á vorfagnað Lífeyrisdeildar Sameykis
![Komið með á vorfagnað Lífeyrisdeildar Sameykis - mynd](/library/Myndir/Frettamyndir/2024/Ey%c3%beo%cc%81r%20Ingi.jpg?proc=frontPage)
Eyþór Ingi skemmtir á vorfagnaði lífeyrisdeildar Sameykis.,
Lífeyrisdeild Sameykis stendur fyrir vorfagnaði fyrir félagsfólk í lífeyrisdeild félagsins. Boðið verður upp á dýrindis steikarhlaðborð með kalkún og lambi ásamt ljúfengu meðlæti. í eftirrétt verður boðið upp á gómsætt súkkulaðifrauð með vanillurjóma og jarðaberjum að ógleymdum blessuðum kaffisopanum.
Eyþór Ingi kemur og skemmtir mannskapnum með söng og gamanmáli. Á eftir spila Grímur Sigurðsson og Sara Grímsdóttir fyrir dansi.
Verð kr. 4.000 á mann.
Skráning á vorfagnaðinn er í gegnum Orlofshúsavef Sameykis, smellið hér.
Félagsfólk má bjóða einum gesti með sér. Síðasti dagur til að skrá sig er sunnudagurinn 5. maí.