Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

12. júní 2024

Kjarasamningur Sameykis við ríkið undirritaður

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis tekur í hönd Jökuls Heiðdals Úlfssonar, formanns samninganefndar ríkisins eftir undirskrift. Ríkissáttasemjari, Ástráður Haraldsson, óskar þeim til hamingju.

Samninganefndir ríkisins og Sameykis gengu frá samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningum aðila við Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs í kvöld.

Gildistími samningsins er til fjögurra ára, frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er gerður í kjölfar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í mars 2024.

Nú hefst vinna við að útbúa kynningarefni um kjarasamninginn og verða tveir kynningarfundur í fjarfundi á Zoom:

  • Miðvikudaginn 19. júní kl. 11:00-12:00
  • Fimmtudaginn 20. júní kl. 14:00-15:00

Tenglar koma inn síðar.