13. júní 2024
Kjarasamningur Sameykis við Reykjavíkurborg undirritaður
![Kjarasamningur Sameykis við Reykjavíkurborg undirritaður - mynd](/library/Myndir/Frettamyndir/2024/Samnionganefndir.jpg?proc=frontPage)
Við undirritun kjarasamningsins í nótt.
Samninganefndir Sameykis og Reykjavíkurborgar skrifuðu undir kjarasamning á þriðja tímanum nótt.
Gildistími samningsins er frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.
Kjarasamningurinn er gerður í kjölfar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í mars 2024.
Nú hefst vinna við að útbúa kynningarefni og verða tveir kynningarfundir í fjarfundi á Zoom:
- Miðvikudaginn 19. júní kl. 14:00-15:00
- Fimmtudaginn 20. júní kl. 11:00-12:00