13. júní 2024
Kjarasamningur við sveitarfélögin undirritaður
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags og 2. varaformaður BSRB skrifa undir kjarasamninginn í húsakynnum ríkssáttasemjara í nótt.
Samninganefndir 11 aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning á öðrum tímanum í nótt. Gildistími samningsins er frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Samið var á sambærilegum nótum og á almennum markaði í vor.
Félögin sem kjarasamningurinn nær til eru:
• Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
• Félag opinbera starfsmanna á Austurlandi
• FOSS - stéttarfélag í almannaþjónustu
• Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu
• Starfsmannafélag Garðabæjar
• Starfsmannafélag Húsavíkur
• Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
• Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
• Starfsmannafélag Kópavogs
• Starfsmannafélag Suðurnesja
• Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar
Nýr kjarasamningur verður kynntur félagsfólki í Sameyki á næstu dögum.