Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

24. júní 2024

Kjarasamningur við ríkið samþykktur

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Fjármála- og efnahagsráðherra f.h ríkissjóðs lauk kl. 14:00 í dag.

Kjarasamningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2024 – 31. mars 2028.

Fjöldi á kjörskrá voru 5.615 og greidd atkvæði voru 1.503 eða 26,77%. 1.163 voru samþykkir, eða 77,38%. Alls höfnuðu 17.17% samningnum og 5,46% tóku ekki afstöðu.

Nýr samningur og launatöflur eru aðgengilegar hér undir Kaup og kjör.