5. júlí 2024
Kjarasamningur við Klettabæ samþykktur
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Klettabæjar lauk kl. 11:00 í dag.
Kjarasamningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.
Fjöldi á kjörskrá voru 442. Greidd atkvæði voru 121 eða 27,38%. 102 eða 84,30% voru samþykkir, 13 eða 10,74% höfnuðu samningnum og 6 eða 4,96% tóku ekki afstöðu.
Nýr samningur og launatöflur verða aðgengilegar undir Kaup og kjör.