3. september 2024
Opnað fyrir bókun orlofshúsa
Opnað verður fyrir tímabilið 2. janúar til 23. maí 2025 að undanskildum páskum 5. september kl. 9:00.
Breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi varðandi bókanir á orlofshúsum og íbúðum Sameykis á vetrartíma. Undanfarin ár hefur verið opnað fyrir leigu yfir vetrartímann einn mánuð í einu, 5 mánuði fram í tímann innanlands og 6 mánuði fram í tímann erlendis.
Því hefur verið hætt og verður nú opnað fyrir leigu á vetrartíma í tvennu lagi. Á fimmtudaginn kemur 4. september verður eins og áður sagði opnað fyrir vetrartímann frá og með janúarmánuði til maímánaðar 2025.