Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

19. september 2024

Sameyki og RÚV undirrita kjarasamning

Samninganefndir Sameykis og RÚV. F.v. Jenný Stefánsdóttir, lögfræðingur í kjaradeild Sameykis, Kristín María Magnúsdóttir, sérfræðingur í rekstrardeild Sameykis, Guðrún Gunnarsdóttir, dagskrárgerðamaður á RÚV, Björn Þór Sigbjörnsson, dagsrárgerðamaður á RÚV og Sigdís Þóra Sigþórsdóttir, sérfræðingur í kjaradeild Sameykis.

Samninganefndir RÚV og Sameykis gengu frá fjögurra ára kjarasamningi í gær 18. september 2024. Gildistími samningsins er frá 1. mars 2024 til 1. febrúar 2028.

Kynningafundur á samningnum verður á föstudaginn 20. september kl. 9:30. Fundurinn verður haldin í Betri stofunni hjá RÚV.

Atkvæðagreiðsla um samninginn mun hefjast á sama tíma og mun félagsfólk fá sendan tölvupóst með nánari upplýsingum. Atkvæðagreiðslu lýkur mánudaginn 23. september kl. 15:00.