25. september 2024
Kjaraviðræðum við Félagsbústaði hf. vísað til ríkissáttasemjara
Samninganefnd Sameykis ákvað á fundi sínum 24. september sl. að vísa kjaraviðræðum um endurnýjun á kjarasamningi Sameykis og Félagsbústað hf. til ríkissáttasemjara.
Samninganefndin hefur reynt síðan 12. ágúst að ná samkomulagi um endurnýjun á kjarasamningi án fullnægjandi árangurs. Telja fulltrúar samninganefndar félagsins að fullreynt sé ná samkomulagi milli aðila án milligöngu ríkissáttasemjara. Félagsfólk sem kjarasamningurinn nær til telur um 25 félagsmenn sem starfa hjá Félagsbústöðum hf.