Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

31. október 2024

Fræðsluerindi um inngildingu fólks með fötlun á vinnumarkaði

Í fræðsluerindinu er leitast við að undirbúa starfsstaði til þess að taka á móti fötluðum einstaklingum til starfa.

Starfsmennt fræðslusetur stendur fyrir fræðsluerindi miðvikudaginn 6. nóvember frá kl. 14:00-15:00 um inngildingu fólks með fötlun á vinnumarkaði.

Í fræðsluerindinu er leitast við að undirbúa starfsstaði til þess að taka á móti fötluðum einstaklingum til starfa og stuðla þannig að inngildandi vinnumarkaði þar sem þátttaka allra er metin að verðleikum og tækifærin gefin.

Sérstaklega er fjallað um eftirfarandi þætti; hvað felst í viðeigandi aðlögun, hvaða þýðingu hún hefur bæði fyrir fatlaða einstaklinga, samstarfsfólk og vinnustaðamenningu.

Sjá nánar hér.