14. nóvember 2024
Bókanir orlofshúsa á Suðureyri, Húsavík og Spáni
Opnað verður fyrir bókanir á Orlofshúsavef Sameykis í þremur orlofshúsum 28. nóvember nk. kl. 9:00. Um er að ræða íbúðarhús við Hjallaveg á Suðureyri við Súgandafjörð, á Húsavík nýtt 105 fm. parhús við Hraunholt 24 með svefnplássi fyrir 5 til 6 manns. Á Spáni orlofsíbúð nr. 129 í Quesada.
Opnað verður fyrir bókanir þessara þriggja orlofseigna fyrir tímabilið 2. janúar til 22. maí 2025 eins og áður sagði þann 28. nóvember.