Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

12. mars 2025

Frádráttur á móti styrkjum frá Sameyki í skattframtali

Nú er búið að opna fyrir skil á skattframtali og því minnum við félagsfólk sem fékk styrk á árinu 2024 að huga að því hvort heimilt sé að færa kostnað til frádráttar.

Fræðslustyrkir og styrkir úr styrktar- og sjúkrasjóði birtast sjálfkrafa á netframtali félagsfólks sem fengið hefur slíka styrki. Hægt er að skrá kostnað á móti fræðslustyrkjum sem tengjast starfi og á móti líkamsræktarstyrkjum. Gera skal sundurliðaða grein fyrir kostnaði á móti fræðslustyrkjum á sérstöku yfirliti sem fylgir framtalinu. Frádráttur á móti fræðslustyrkjum færist í reit 149 á skattframtali og í reit 157 vegna líkamsræktarstyrkja.

Heimilt er að færa til frádráttar líkamsrækt uppá 77.000 kr. á tekjuárinu 2024. Aðrir styrkir styrktar- og sjúkrasjóðs eru skattskyldir.

ATHUGIÐ! Þú getur nálgast upplýsingar um hvaða styrki þú hefur fengið á árinu 2024 með því að skrá þig inn á Mínar síður Sameykis og þar velur þú Mínar umsóknir.

Sjá nánar um frádrátt á móti styrkjum á vef RSK.

Frestur til að skila framtali er til 14. mars.