3. apríl 2025
Síðasti séns að kaupa miða á vorfagnað Lífeyrisdeildar

Vorfagnaður fyrir félagsfólk í Lífeyrisdeild Sameykis verður haldinn miðvikudaginn 9. apríl nk. frá kl. 12:00 til 15:00 í Gullhömrum í Grafarholti.
Boðið verður upp á steikarhlaðborð með lambi og purusteik ásamt meðlæti. Í eftirrétt verður heit eplabaka með karamellusósu og vanilluís og kaffi.
Vigdís Hafliðadóttir skemmtir með uppistandi. Grímur Sigurðsson og Sara Grímsdóttir spila fyrir dansi. Verð kr. 5.000 kr. á mann.
Skráning á vorfagnaðinn fer fram á Orlofshúsavef Sameykis undir gjafabréf og miðar. Félagsfólk má bjóða einum gesti með sér á vorfaagnaðinn. Síðasti dagur til að skrá sig er sunnudagurinn 6. apríl.