Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. apríl 2025

Ráðgjafi í kjaradeild – Sameyki

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu leitar að færum ráðgjafa til að sinna kjaramálum á skrifstofu félagsins. Starfið er fjölbreytt og reynir á frumkvæði og sjálfstæði.

Félagsfólk Sameykis býr við síbreytilegt vinnuumhverfi þar sem ágreiningur getur komið upp í tengslum við réttindi þess. Ráðgjafi í kjaramálum er í framlínu og hefur það hlutverk að sinna þjónustu við félagsfólk Sameykis vegna kjara- og réttindamála.

Ráðgjafi starfar í öflugu teymi í kjaramálum sem deilir á milli sín verkefnum eða eftir atvikum leysir þau í sameiningu. Hjá Sameyki starfar samhentur hópur starfsfólks sem er tilbúið til að aðstoða og leysa verkefni þvert á deildir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Símsvörun, svörun fyrirspurna og móttaka félagsfólks
Úrlausn kjara- og/eða réttindamála fyrir einstaklinga
Upplýsingagjöf um kjarasamningtengd réttindamál
Ráðgjöf og upplýsingar til félagsfólks
Hæfnikröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af ráðgjöf æskileg
Þekking á á kjara- og réttindamálum æskileg
Þekking á starfsemi opinberra stofnana æskileg
Góð tölvukunnátta og góð þekking á Excel
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Nánari upplýsingar

Gunnsteinn R. Ómarsson, framkvæmdastjóri Sameykis – gunnsteinn@sameyki.is

Ingólfur Björgvin Jónsson, deildarstjóri kjaradeildar – ingolfur@sameyki.is

Elín Dögg Ómarsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi – elin@hagvangur.is