16. apríl 2025
Vefstjóri- Sameyki

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan vefstjóra til félagsins. Starfið er fjölbreytt og reynir á frumkvæði og sjálfstæði í margskonar verkefnum.
Vefstjóri kemur til með að hafa umsjón með vefsíðum félagsins, stafrænni þróun ásamt verkefnum tengdum upplýsingatækni.
Vefstjóri starfar í öflugu teymi á skrifstofu Sameykis sem deilir á milli sín verkefnum eða eftir atvikum leysir þau í sameiningu. Hjá Sameyki starfar samhentur hópur starfsfólks sem er tilbúið til að aðstoða og leysa verkefni þvert á deildir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með vefum, þróun og viðhaldi
Þátttaka í þróun stafrænnar stefnu félagsins
Innleiðing á nýrri vefsíðu Sameykis
Innleiðing á nýjum orlofshúsavef
Greiningarvinna
Hæfnikröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af vefumsjónarkerfum
Áhugi á stafrænum lausnum og nýjungum í upplýsingatækni
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Gott vald á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar
Gunnsteinn R. Ómarsson, framkvæmdastjóri Sameykis – gunnsteinn@sameyki.is
Kristín María Magnúsdóttir, sérfræðingur í upplýsingatækni og greiningum – kristinmm@sameyki.is
Elín Dögg Ómarsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi – elin@hagvangur.is