Starfsreglur háskóladeildar
Starfsreglur háskóladeildar
Samþykktar á stofnfundi 4. apríl 2019
Samþykktar á aðalfundi 17. mars 2023
Samþykktar á aðalfundi 16. apríl 2026
1. gr.
Rétt til aðildar að háskóladeild Sameykis – stéttarfélags í almannaþjónustu á það félagsfólk sem hefur lokið námi á að minnsta kosti Bachelor-gráðu eða sambærilegu námi
2. gr.
Deildin starfar í samræmi við ákvæði félagslaga Sameykis og samkvæmt gildandi starfsreglum.
3. gr.
Viðfangsefni deildarinnar skulu vera;
• að gæta hagsmuna háskólamenntaðra félagsmanna innan Sameykis og vera málsvari þeirra,
• að fjalla um hagsmuna- og sérmál er varða réttindi og kjör félagsmanna með háskólamenntun
• að halda uppi kynningar- og félagsstarfi með félögum innan háskóladeildarinnar,
• að standa að fræðslu og gefa félögum tækifæri til að efla þekkingu sína
4. gr.
Umsókn um aðild skal berast skrifstofu Sameykis í gegn um vef félagsins. Nýir félagar öðlast félagsréttindi þegar við samþykkt umsóknar. Umsókninni skulu fylgja upplýsingar um menntun umsækjandans.
.
5. gr.
Stjórn deildarinnar skipa fimm aðilar, formaður og fjórir meðstjórnendur, er skulu kosnir úr hópi fullgilds félagsfólks deildarinnar á aðalfundi til fjöruggra ára í senn. Formann skal kjósa sérstaklega en fjórir meðstjórnendur og tveir varamenn skulu kosnir í einu lagi. Stjórnin skiptir með sér verkum og velur úr sínum hópi varaformann og ritara.
Stjórnarmönnum, að formanni meðtöldum, er ekki heimilt að sitja lengur samfellt í stjórn en þrjú kjörtímabil (12 ár). Þótt stjórnarmaður, hafi setið í stjórn deildarinnar samfellt í 12 ár hefur það engin áhrif á þann tíma sem honum er heimilt að gegna formennsku.
Stjórn deildarinnar skilar ársskýrslu til stjórnar Sameykis á hverju ári.
Stjórn háskóladeildar Sameykis kýs úr sínum hópi tvo fulltrúa og tvo til vara sem eiga rétt til setu í trúnaðarmannaráði og fulltrúaráði félagsins.
6. gr.
Stjórnarfundi skal halda með reglulegum hætti að boði formanns eða samkvæmt ákvörðun stjórnar. Stjórnarfundir eru lögmætir ef minnst 3 mæta til fundar. Rita skal fundagerðir allra funda deildarinnar.
7. gr.
Á tímabilinu 1. mars til 15. maí skal halda aðalfund deildarinnar og skal til hans boðað með minnst
þriggja vikna fyrirvara. Aðalfund skal boða með auglýsingu á miðlum Sameykis og deildarinnar.
Eftirfarandi eru sérstök verkefni aðalfundar:
1.Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um starfsemina á síðastliðnu ári.
2.Breytingar á starfsreglum deildarinnar.
3.Kosið í stjórn
a.Kosning formanns
b.Kosning fjögurra meðstjórnenda
c.Kosning tveggja varamanna
4.Önnur mál.
8. gr.
Starfsreglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi deildarinnar og þarf ⅔ greiddra atkvæða til þess
að breyting öðlist gildi sem og samþykki stjórnar Sameykis.
9. gr.
Bráðabirgðarákvæði Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skal á aðalfundi Háskóladeildar árið 2027 kjósa 2 meðstjórnendur til 2 ára og 2 meðstjórnendur til 4 ára. Atkvæðamagn í kosningu ræður hverjir sitja til 4 ára og hverjir til 2 ára. Verði jafnt atkvæðamagn milli frambjóðenda sem ræður úrslitum um lengd kjörtímabils skal hlutkesti ráða. Ef framboð eru jafnmörg eða færri en sæti sem kjósa skal í teljast frambjóðendur sjálfkjörnir.