Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Kannanir

Í nóvember er lögð fyrir félagsfólk könnun sem snýr að vali á Stofnun ársins þar sem starfsfólk metur frammistöðu stofnunar.  Niðurstöður liggja öllu jafna fyrir um miðjan febrúar og eru kynntar á vef Sameykis.
Halda áfram

Val á Stofnun ársins, Fyrirmyndarstofnunum og Hástökkvara ársins byggir á mati starfsmanna og eru niðurstöðurnar mælikvarði á frammistöðu stofnana þegar kemur að stjórnun, starfsanda, launakjörum, vinnuskilyrðum, sveigjanleika og sjálfstæði í starfi, ímynd stofnana og jafnrétti.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra vinnustaða og nær til tæplega 40.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Könnunin nær almennt til alls starfsfólks, en þó er almennt miðað við að starfsfólk hafi starfað á vinnustaðnum í þrjá mánuði eða lengur. Þetta viðmið er notað svo svarendur séu betur í stakk búnir til að meta starfsumhverfi sitt með áreiðanlegum hætti. Einnig er í flestum tilvikum miðað við að þátttakendur séu í a.m.k. 30% starfshlutfalli.

Ábyrgð á könnuninni er eftirfarandi:

  • Reykjavíkurborg er ábyrgðaraðili gagnvart sínu starfsfólki.
  • Fjármála- og efnahagsráðuneytið er ábyrgðaraðili gagnvart starfsfólki ríkisins.
  • Sameyki er ábyrgðaraðili könnunarinnar gagnvart sínu félagsfólki. Sameyki hefur m.a. það hlutverk að berjast fyrir réttindum félagsmanna sinna, bæta aðbúnað þeirra, veita þeim ýmiskonar þjónustu og móta kröfur fyrir þeirra hönd í kjarasamningum. Sameyki kannar kjör, aðstæður og viðhorf sinna félagsmanna til að geta sinnt þörfum þeirra og hagsmunum betur.
  • Ef stofnun, vinnustaður eða fyrirtæki óskar eftir þátttöku í könnuninni að eigin frumkvæði, þá er sá vinnustaður ábyrgðaraðili gagnvart sínu starfsfólki.
  • Gallup á Íslandi sér alfarið um vinnslu könnunarinnar, gagnaöflun, varðveislu gagna og skýrslugerð (Gallup er vinnsluaðili). Sjá nánari upplýsingar hér.