Kl. 14:00 | Setning málþings |
Ávarp Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis | |
Rödd starfsfólks - Hvað segir starfsfólk um vellíðan og vöxt með betri vinnutíma Sóley Kristjánsdóttir, þjálfari og sérfræðingur á sviði mannauðslausna og ráðgjafar hjá Gallup | |
Spjall um hvernig stytting vinnuvikunnar hafi gengið hjá ríki og Reykjavíkurborg Lóa Birna Birgisdóttir, sviðsstjóri Mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar Aldís Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins | |
Betri vinnutími í vaktavinnu - ávinningur og áskoranir. Bára Hildur Jóhannsdóttir, verkefnastjóri betri vinnutíma í vaktavinnu | |
Reynslusögur - Sjónarhorn stjórnenda og starfsfólks - Árbæjarlaug vaktavinna - Laugarás meðferðargeðdeild Landpítali vaktavinna | |
Kl. 15:00 | Hlé í 15 mínútur |
Reynslusögur - Sjónarhorn stjórnenda og starfsfólks - Leikskólinn Hálsaskógur dagvinna - Landsbókasafn Háskólabókasafn dagvinna með meiru - Tryggingastofnun ríkisins dagvinna | |
Vöxtur í mótlæti Guðrún Snorradóttir stjórnendaþjálfi | |
Liðsheild og metnaður Auðunn Arnórsson, MPA | |
Samantekt Sirrý Arnardóttir málþingsstjóri |
Hvað segir starfsfólk um vellíðan og vöxt með betri vinnutíma Þemaspurningar í könnuninni að þessu sinni fjölluðu um styttingu vinnuvikunnar, líðan starfsmanna og tækifæri til vaxtar í starfi. Sóley Kristjánsdóttir, sem er sérfræðingur hjá Gallup, hefur rýnt niðurstöðurnar úr þessum þáttum könnunarinnar og ætlar að setja þær í samhengi fyrir okkur. | |
Betri vinnutími í vaktavinnu – ávinningur og áskoranir Eftir 10 mánaða reynslu af betri vinnutíma í vaktavinnu upplýsti Bára Hildur Jóhannsdóttir okkur um stöðuna og fór yfir ávinning og áskoranir. Um er að ræða eitt stærsta breytingarverkefni á vinnutíma starfsfólks í hálfa öld og því ljóst að um umbótavegferð er að ræða. Í vinnutímabreytingunum felst einstakt tækifæri sem allir ættu að taka þátt í að þróa áfram með öryggi, heilsu og jafnvægi vinnu og einkalífs að leiðarljósi. | |
Vöxtur í mótlæti Þessa daganna eru vinnustaðir að upplifa nýjan veruleika. Við erum að koma tilbaka eftir mislanga dvöl heima við og allt er breytt. Við erum breytt og mögulega einhverjar forsendur á vinnustaðnum okkar. Núna skiptir máli að vanda sig og nýta þau tól og tæki sem fyrirfinnast til að auðvelda endurkomu og tryggja góða líðan með framhaldið. Á fyrirlestrinum leitaðist Guðrún Snorradóttir við að svara eftirfarandi spurningum: Hvaða tilfinningum getum við átt von á og hvernig er best að bregðast við þeim? Hvernig tökum við reglulega „stöðuna“ á okkur og hópnum okkar? Hvað einkennir þær leiðir sem fara má til að vaxa í mótlæti? Hvernig getum við hlúð að starfsfólkinu okkar, með þessa vitneskju í fararteskinu? | |
Liðsheild og metnaður Hvernig geta stjórnendur hjá hinu opinbera nýtt sér niðurstöður úr starfsánægjukönnuninni Stofnun ársins til að stuðla að úrbótum á sínum vinnustöðum? Þetta var aðalrannsóknarspurning Auðuns Arnórssonar í meistaraprófsritgerð hans í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands sem var unnin á síðasta ári. |