Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Viltu vita meira?

Halda áfram

 

Aðgengi stofnana að ítarlegri niðurstöðum

Allar ríkisstofnanir sem eru þátttakendur í könnuninni fá senda skýrslu með niðurstöðum svo fremi sem skilyrði um lágmarkssvörun sé uppfyllt (35% þátttaka).

Öðrum þátttökustofnunum gefst kostur á að kaupa skýrslu frá Gallup fyrir sína stofnun, svo framarlega sem skilyrði um svörun sé uppfyllt.
Í skýrslunni er gerð ítarleg greining á niðurstöðum könnunarinnar. Þar eru m.a. bornar saman meðaltalseinkunnir hverrar spurningar hjá viðkomandi stofnun við meðaltalseinkunn allra stofnana. Einnig eru breytingar frá síðustu mælingu skoðaðar þegar það á við.

Ef óskað er frekari upplýsinga má hafa samband við Mörtu Gall Jörgensen (marta.jorgensen@gallup.is) eða Tómas Bjarnason (tomas.bjarnason@gallup.is) hjá Gallup.