Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Stofnun ársins 2020

Stofnanir ársins 2020 eru Norðlingaskóli, Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Jafnréttisstofa. Hástökkvarar ársins eru Umhverfis- og skipulagssvið og Sjálfsbjargarheimilið.
Halda áfram

 

Stofnanir ársins 2020 eru Norðlingaskóli, Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Jafnréttisstofa. Hástökkvarar ársins eru Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og Sjálfsbjargarheimilið.

Valið á Stofnun ársins 2020 var tilkynnt í gegnum streymi 14. okt. en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna í könnun Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu.

Könnunin náði til um 12 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu, bæði hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignarstofnunum. Hún er unnin í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneyti og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur til að gera vel í starfsmannamálum og að auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum.

 

Vinningshafar - Ríki og sjálfseignarstofnanir

Vinningshafar - Borg og bær

Viltu vita meira?

Framkvæmd könnunar

Aðaltöflur - Ríki og sjálfseignarstofnanir

Aðaltöflur - Borg og bær

Helstu niðurstöður - allar stofnanir

Heildarniðurstöður - 12.000 svör

Niðurstöður eftir þáttum

Niðurstöður í sérriti PDF

Happdrætti Stofnun ársins 2020

Málþing um um framtíðarvinnumarkaðinn sem haldið var 14. okt.