Aðgengi stofnana að ítarlegri niðurstöðum
Allar ríkisstofnanir sem eru þátttakendur í könnuninni fá senda skýrslu með niðurstöðum svo fremi sem skilyrði um lágmarkssvörun séu uppfyllt (35% þátttaka).
Öðrum þátttökustofnunum (sem standa utan ríkisins) gefst kostur á að kaupa skýrslu frá Gallup fyrir sína stofnun, svo framarlega sem skilyrði um svörun séu uppfyllt.
Í skýrslunni sem stofnanir fá er gerð ítarleg greining á niðurstöðum könnunarinnar. Í henni er m.a. borin saman meðaltalseinkunn hverrar spurningar hjá viðkomandi stofnun við meðaltalseinkunn allra stofnana. Einnig eru breytingar frá síðustu mælingu skoðaðar þegar það á við.
Ef óskað er frekari upplýsinga má hafa samband við Tómas Bjarnason (tomas.bjarnason@gallup.is) eða Írisi Björgu Birgisdóttur (iris@gallup.is) hjá Gallup.