Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Viltu vita meira?

Aðgengi stofnana að ítarlegri niðurstöðum

Hjá Reykjavíkurborg þá verða niðurstöður starfsstaða birtar stjórnendum í skýrslu ef viðkomandi svið hefur náð 35% svarhlutfalli og að það hafi að lágmarki 5 svör borist.

Allar ríkisstofnanir sem eru þátttakendur í könnuninni fá senda skýrslu með niðurstöðum svo fremi sem skilyrði um lágmarkssvörun séu uppfyllt (35% svarhlutfall og fimm svör að lágmarki). Hver stofnun fær samanburð við stofnanaflokk og ríkisstofnanir í heild.

Öðrum þátttökustofnunum (sem standa utan ríkisins) gefst kostur á að kaupa skýrslu frá Gallup fyrir sína stofnun, svo framarlega sem skilyrði um svörun séu uppfyllt (35% svarhlutfall og fimm svör að lágmarki). 

Í skýrslunni sem stofnanir fá er gerð ítarleg greining á niðurstöðum könnunarinnar. Í henni er m.a. borin saman meðaltalseinkunn hverrar spurningar hjá viðkomandi stofnun við meðaltalseinkunn allra stofnana. Einnig eru breytingar frá síðustu mælingu skoðaðar þegar það á við.

Ef óskað er frekari upplýsinga má hafa samband við Tómas Bjarnason (tomas.bjarnason@gallup.is) eða Írisi Björgu Birgisdóttur (iris@gallup.is) hjá Gallup.

Nánari umfjöllun um helstu niðurstöður allra stofnana og heildarniðurstöður (rúmlega 16.000 svör) eftir þáttum er að finna hér í sérritinu Stofnun ársins.