Sérstakur listi er fyrir sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki, líkt og fyrir ári. Alls náðu sjö stofnanir eða fyrirtæki þátttökuskilyrðum. Efst á lista meðal sjálfseignastofnanna og fyrirtækja árið 2023 varð Heilsustofnunin NLFÍ, líkt og í fyrra, en stofnunin hefur verið ofarlega á lista árum saman.
Hér má nálgast lista yfir þessa sjö vinnustaði.
Sameyki óskar starfsfólki og stjórnendum HNLFÍ innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.