Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri í Stofnun ársins en nú, en í ár tóku tæplega 17.400 þátt í könnuninni. Reykjavíkurborg er þátttakandi í könnuninni með allt starfsfólk í þriðja sinn en allt ríkisstarfsfólk hefur tekið þátt síðan árið 2011. Niðurstöður verða í þremur flokkum, líkt og síðustu tvö ár. Flokkarnir eru: ríkisstofnanir, starfsstaðir Reykjavíkurborgar og sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu.
Stofnun ársins var framkvæmd í október og nóvember 2024. Þátttökulistar (netfangalistar) ríkisstofnanna komu almennt frá kjara- og mannauðssýslunni. Við gerð þátttökulista var miðað við að starfsfólk væri starfandi í ágúst og október og væri í að lágmarki 20% starfshlutfalli. Listi yfir starfsfólk borgarinnar kom frá Mannauðs- og starfsumhverfissviði borgarinnar. Sjálfseignarstofnanir, fyrirtæki og fleiri vinnustaðir geta óskað eftir þátttöku fyrir allt starfsfólk óháð félagsaðild og senda þá þessir vinnustaðir þátttökulista til Gallup. Sex slíkir vinnustaðir tóku þátt í ár og greiða sjálfir fyrir þátttöku þess starfsfólks sem stendur utan Sameykis. Þetta voru Heilsustofnun NLFÍ, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), Matís ohf., Orkubú Vestfjarða (OV), Reykjalundur og Félagsbústaðir.
Um könnunina
Stofnun ársins er samstarfsverkefni margra aðila; Sameykis, Kjara- og mannauðssýslunnar, Mannauðs- og starfsumhverfissviðs borgarinnar og svo stofnananna og vinnustaðanna sjálfra. Niðurstöður könnunarinnar veita afar mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir. Í könnuninni er hægt að bera saman starfsumhverfi ríkis og borgar með góðum hætti. Einnig er hægt að bera saman niðurstöður þessarar könnunnar við niðurstöður á almennum markaði þar sem VR framkvæmir sambærilega könnun, „Fyrirtæki ársins,“ meðal félagsfólks VR og fyrirtækja á almennum markaði.
Tilgangur könnunarinnar
Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.
Hvernig fer könnunin fram?
Spurningalisti er lagður fyrir starfsfólk á netinu. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti, en þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi vinnustaðanna. Spurningalistinn er sá sami og notaður hefur verið undanfarin ár og niðurstöður því sambærilegar við fyrri ár.

Hvernig eru þættirnir búnir til?
Þáttagreining (factor analysis) er notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem eru mældir.
Í megindráttum komu fram níu þættir, en þeir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd, ánægja og stolt og jafnrétti.
Vægi þáttanna í heildareinkunn ákvarðast af þáttagreiningunni (sjá mynd) en vinnustöðunum er síðan raðað eftir heildareinkunninni.
Alls fengust gild svör frá tæplega 17.400 og hafa svörin aldrei verið fleiri. Þar af voru tæplega 11.100 svör frá starfsfólki ríkisstofnana, tæplega 5.500 svör frá starfsfólki Reykjavíkurborgar og ríflega 800 svör frá starfsfólki sjálfseignarstofnana og fyrirtækja í almannaþjónustu. Svarhlutfall, gildir listar af endanlegu úrtaki, var tæplega 52%.
Stofnanir á lista
Stofnanaflokkarnir eru þrír: starfsstaðir borgarinnar (257starfsstaðir), ríkisstofnanir (140 stofnanir) og svo fyrirtæki og sjálfseignarstofnanir (6 fyrirtæki/stofnanir). Að baki vali á Stofnun ársins liggja niðurstöður stofnana og starfsstaða sem uppfylla skilyrði um svörun (35% svarhlutfall og að lágmarki 5 svör) og byggir sá hluti á 8.749 svörum frá starfsfólki ríkisins, 5.149 svörum frá starfsfólki borgarinnar og 327 svörum frá starfsfólki sjálfseignarstofnana og fyrirtækja.
Þátttökuskilyrði
Til að stofnun, starfsstaður eða fyrirtæki komi til greina í vali á Stofnun ársins þurfa svör að vera að lágmarki fimm og svarhlutfall þarf að vera að lágmarki 35% – þá er miðað við innsenda lista sem hlutfall af útsendum spurningalistum. Ef vinnustaður býður ekki öllu starfsfólki þátttöku eru þátttökuskilyrði önnur og þá eru auk þess gerðar kröfur um fjölda þátttakenda eftir því sem vinnustaðurinn stækkar.
Könnunin nær til allra starfsstaða Reykvíkurborgar, allra ríkisstofnana sem og til alls félagsfólks Sameykis sem er í 20% starfshlutfalli eða meira og hefur verið félagsfólk í a.m.k. þrjá mánuði. Félagsfólk Sameykis starfar víða, t.d. hjá ríki og sveitarfélögum (aðallega Reykjavík, Akranesi og Seltjarnarnesi), fyrirtækjum borgarinnar, hjá sjálfseignarstofnunum eða stofnunum í eigu annara en ríkisins. Þessir vinnustaðir eru einnig með í vali á stofnun ársins svo fremi sem þeir uppfylli almenn þátttökuskilyrði. Þá geta þessir vinnustaðir óskað eftir þátttöku í Stofnun ársins og boðið öllu starfsfólki að svara könnuninni.
Nánari umfjöllun um helstu niðurstöður allra stofnana og heildarniðurstöður (tæplega 17.400 svör) eftir þáttum er að finna hér í sérritinu Stofnun ársins.