Kjarasamningur við Rarik

Kjarasamningur

Kjarasamningur Sameykis við RARIK ohf. hefur verið framlengdur fimm sinnum frá því hann var síðast gefinn út í heild sinni árið 2011. Lesa þarf saman samningana frá 2011, 2014, 2015, 2019, 2022 og 2024 til að fá heildarsýn á réttindi.

Launatöflur

Orlofs- og desemberuppbót

Miðað við fullt starf
ÁrOrlofsuppbótDesemberuppbót
202466.000 kr.123.600 kr.
202576.000 kr.127.900 kr.
202686.000 kr.132.400 kr.
202796.000 kr.137.000 kr.
Ár
2024
Orlofsuppbót
66.000 kr.
Desemberuppbót
123.600 kr.
Ár
2025
Orlofsuppbót
76.000 kr.
Desemberuppbót
127.900 kr.
Ár
2026
Orlofsuppbót
86.000 kr.
Desemberuppbót
132.400 kr.
Ár
2027
Orlofsuppbót
96.000 kr.
Desemberuppbót
137.000 kr.

Reglur um desemberuppbót

Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Miðað er við að starfsmaður sé í starfi síðustu viku nóvember eða fyrstu viku desember og desemberuppbótin er greidd eigi síðar en 15. desember.

Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili.

Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar. Áunnin persónuuppbót skal gerð upp samhliða starfslokum.

Reglur um orlofsuppbót

Hinn 1. júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl næst á undan, fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða/13 vikna samfellt starf á orlofsárinu, skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum.

Orlofsuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofsfé. Áunnin persónuuppbót skal gerð upp samhliða starfslokum.

Aðrir kjarasamningar Sameykis