Kynningarfundur fyrir félagsmenn sem starfa sem starfa hjá sveitarfélögum hringinn í kringum landið og taka laun samkvæmt kjarasamningi við Samband íslenskra sveitarfélaga var 17. mars kl. 16:30. Vegna COVID-19 eru fundirnir sendir út í gegnum Zoom fjarfundakerfi og komust 500 manns á hvern fund.
Atkvæðagreiðsla er rafræn á Mínum síðum, og lýkur kl. 10 mánudaginn 23. mars.
- Tengill á kynningarfund frá 17. mars - Introduction with ENGLISH SUBTITLES
Athugið, kynning hefst á mínútu 13:30 - Introduction starts 13:30 - Glærukynning fyrir kjarasamningsinn
- Powerpoint introduction of central agreement
- Samningurinn sem var skrifað undir
Kynningarefni frá BSRB
Í ljósi óvenjulegra aðstæðna í samfélaginu þessa dagana sem koma í veg fyrir fundi þar sem efni samninganna er kynnt félagsmönnum hefur BSRB útbúið kynningarefni fyrir þau mál sem félögin fólu bandalaginu að semja um fyrir sína hönd. Hér að neðan er hægt að smella á efnisþætti til að sjá texta og stutt kynningarmyndband. Þar má einnig finna algengar spurningar og svör við þeim. Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér þetta efni vel áður en atkvæði eru greidd um samningana.
- Stytting vinnuvikunnar í dagvinnu
- Stytting vinnuvikunnar í vaktavinnu
- Breytingar á orlofsmálum
- Skil milli vinnu og einkalífs
- Jöfnun launa milli markaða og launaþróunartrygging
- Spurt og svarað um kjarasamningana
- Kynningarglærur fyrir alla efnisflokkana
Atkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sameykis verður rafræn í gegnum Mínar síður og hefst kl. 16 þriðjudaginn 17. mars og lýkur kl. 10 mánudaginn 23. mars.