Fréttabréf Lífeyrisdeildar Haust 2026

Haustfagnaður, fræðsla um öryggi á netinu, gönguhópurinn, sumarferðin á Snæfellsnes og ýmislegt gagnlegt fyrir félaga í lífeyrisdeild.

Útgefið: september 2026
Ábyrgðarmaður: Kári Sigurðsson
Umsjón: Jakobína Þórðardóttir

Fá fréttabréfið sent heim

Haustfagnaður

Gullhamrar í Grafarholti (Þjóðhildarstíg 2) þann 7. október kl. 12.00–15.00

  • Boðið verður upp á steikarhlaðborð með kalkún og purusteik ásamt meðlæti. Eftirréttur verður súkkulaðifrauð.
  • Jón Sigurðsson mætir með gítarinn.
  • Grímur Sigurðsson og Sara Grímsdóttir leika fyrir dansi.
  • Happadrætti.

Verð 6.500 kr. á mann
Skráning á haustfagnaðinn er í gegnum rafrænt orlofskerfi félagsins. Félagsfólks má bjóða með sér einum gesti. Síðasti dagur til að skrá sig er fimmtudagurinn 1. október.


Láttu ekki plata þig – fræðsla um öryggi á netinu

Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13.00–15.00. Grettisgötu 89, 1. hæð.

Leiðbeinandi: Steinarr Kristján Ómarsson, lögreglufulltrúi hjá Tölvurannsóknardeild LRH.

Skráðu þig á vef Sameykis


Gönguhópur

Gönguhópur Lífeyrisdeildar Sameykis, undir forystu Péturs Ásbjörnssonar, er með göngur síðasta fimmtudag í mánuði. Gengið er um Fossvogskirkjugarð og lagt af stað frá kirkjunni klukkan 10:00.

Á haustönn 2026 verða þetta dagarnir 24. september, 29. október og 26. nóvember.


Félagar í lífeyrisdeild í sumarferðinni

Sumarferð, sögustaðir og sveppasúpa

Lífeyrisdeildin okkar fór sína árlegu sumarferð sem jafnan er mjög vel sótt. Í ár var engin undantekning þar á, en boðið var upp á þrjár dagsetningar og fullt var í allar ferðirnar.

Það er okkur mikils virði að geta boðið þessum frábæra hópi upp á góða samveru, skemmtilegan dag og fallega upplifun.

Að þessu sinni lá leiðin fyrst í Borgarnes. Þar var stoppað í Skallagrímsgarði, í hjarta bæjarins, áður en haldið var í Safnahús Borgarfjarðar þar sem vel var tekið á móti hópnum.

Frá Borgarnesi var ekið út á Snæfellsnes og áfram til Stykkishólms. Þar gæddum við okkur á gómsætri rjómalagaðri sveppasúpu og brauði á Narfeyrarstofu. Að því loknu gafst tími til að njóta bæjarins og fallegs umhverfis.

Í Helgafellssveit var stoppað á Hraunhálsi, þar sem ábúendur hafa tekið Eyrbyggja sögu upp á sína arma. Þar fengum við innsýn í áhugavert samfélagsverkefni þar sem kvenfélögin í sveitinni, sjö að tölu, taka þátt í að sauma út Eyrbyggjarefil. Ullin í refilinn kemur frá bændum á nesinu.

Á leiðinni til baka var stoppað á Hótel Hamri við golfvöllinn í Borgarnesi, þar sem hópurinn naut góðs kvöldverðar áður en haldið var heim á leið eftir velheppnaða daga.

Veðurguðirnir voru með í för og buðu upp á sannkallað íslenskt sumarveður með öllu sem því fylgir. Við þökkum öllum sem tóku þátt og gerðu þessar ferðir að veruleika.

Við erum strax farin að hlakka til næstu ferðar. Hægt er að nálgast myndir af ferðunum í myndasafni á vef Sameykis.


Orlofshús og orlofstilboð

Félagsfólki í lífeyrisdeild stendur til boða að leigja sér orlofshús yfir vetrartímann virka daga í Vaðnesi og Munaðarnesi á tilboðsverði, þ.e. 2.500 kr. nóttina frá mánudegi til föstudags. Til þess að fá þennan afslátt þarf að senda tölvupóst á orlof@sameyki.is.

Á orlofsvef Sameykis er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, ferðaávísanir og fleira. Við hvetjum ykkur til að skoða orlofsvef Sameykis.


Símenntunarsjóður Lífeyrisdeildar

Félagar í lífeyrisdeild Sameykis hafa aðgang að símenntunarsjóði. Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiða og fræðslu. Greiddir eru styrkir úr sjóðnum tvisvar á ári: 15. maí og 15. nóvember.
Frestur til að senda inn umsóknir í haust er 10. nóvember.

Félagsfólk getur fengið að hámarki 32.000 kr. styrk yfir almanaksárið samkvæmt framlögðum gildum kvittunum. Greiðslur geta þó orðið lægri ef umsóknir eru margar. Ekki er greitt fyrir námskeið meira en ár aftur í tímann. Hægt er að sækja um rafrænt á vef Sameykis undir lífeyrisdeild.

Öllum umsóknum verður að fylgja gild kvittun með kennitölu félagsmanns og fræðsluaðila.


Gott að vita – fyrir alla

Gott að vita námskeið Sameykis standa öllu félagsfólki til boða, því að kostnaðarlausu. Við hvetjum félaga í lífeyrisdeildinni til að kynna sér hvað er í boði á vef Sameykis.


Skráning í Lífeyrisdeild

Nauðsynlegt er að skrá sig í lífeyrisdeildina þegar fólk hættir störfum. Það gerist ekki sjálfkrafa. Hægt er að skrá sig á vefsíðu félagsins undir lífeyrisdeild. Endilega látið vini og félaga sem eiga rétt á aðild vita ef þeir hafa ekki skráð sig.