Orlofsréttindi Lífeyrisdeild

Félagar í lífeyrisdeild eiga rétt á að nýta sér fjölmarga orlofskosti.

Réttur í orlofssjóð

Félagsfólk heldur punktaeign sinni þegar það gengur í lífeyrisdeild. Það getur klárað að nota punktana sem það á en vinnur ekki inn nýja punkta.

  • Vetrarleiga kostar ekki punkta.
  • Sumarleiga kostar punkta.

Réttur til að sækja um orlofshús

Félagar í lífeyrisdeild hafa almennt rétt á að sækja um orlofshús með ákveðnum takmörkunum. Ekki er hægt að sækja um:

  • Tímabilið frá 18. júní til 7. ágúst 2026
  • Yfir páskahátíðina.

Afsláttur á vetrarleigu

Félagsfólk í lífeyrisdeild getur leigt orlofshús yfir vetrartímann virka daga í:

  • Vaðnesi
  • Munaðarnesi

Verð er 2.500 kr. nóttin, frá mánudegi til föstudags. Til að fá afsláttinn þarf að hafa samband við skrifstofu Sameykis í síma 525 8330.

Reglur um framleigu

Ef kemur í ljós að félagar í lífeyrisdeild framleigja orlofshús til þriðja aðila, fá þeir áminningu eins og annað félagsfólk Sameykis.

Slík framleiga getur leitt til þess að viðkomandi fái ekki að leigja orlofshús aftur.

Ætlast er til að félagið sé sjálft með í för.

Aðrir orlofsmöguleikar

Félagar í lífeyrisdeild geta líka nýtt sér aðra orlofstengda styrki og tilboð Sameykis.

  • Gjafabréf í flug
  • Ferðaávísanir
  • Veiði- og útilegukort
  • Önnur tilboð sem eru auglýst á vefsíðu Sameykis