Símenntunarsjóður Lífeyrisdeildar
Það er alltaf hægt að bæta við sig þekkingu. Símenntunarsjóðurinn styrkir þig til þess.
Umsókn og úthlutun
- Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári. 15. maí og 15. nóvember.
- Umsóknir sem berast fyrir 10. maí og 10. nóvember eru teknar til afgreiðslu.
- Hægt er að fá úthlutað tvisvar á ári en aðeins einu sinni á hvorri önn.
- Hámarksstyrkur er 32.000 kr. á ári. Styrkir geta verið lægri ef margar umsóknir berast.
Styrkhæft nám
- Allt almennt nám sem styrkir einstaklinga í símenntun er styrkhæft.
- Ekki eru veittir styrkir fyrir íþrótta- og líkamsræktarnám, andlega iðkun og árgjöld í félögum.
- Lögð er áhersla á að nám sé við viðurkenndar stofnanir.
Greiðslur og kvittanir
- Framvísa þarf kvittun með kennitölu námskeiðshaldara.
- Kvittanir má hengja við umsókn, senda á skrifstofu Sameykis (merkt: Símenntunarsjóður Lífeyrisdeildar) eða senda í tölvupósti á sameyki@sameyki.is
Umsókn og úthlutun
Stjórn Lífeyrisdeildar Sameykis áskilur sér rétt til að breyta reglum sjóðsins án fyrirvara.