Gjafabréf og ávísanir
Orlofsávísanir
Félagsfólk Sameykis getur sótt um orlofsávísun að andvirði 35.000 kr. á sama hátt og sótt er um orlofshús og íbúðir á Orlofshúsavef Sameykis meðan á umsóknarferli sumarúthlutunar stendur. Félagsfólk fær mögulega annað hvort orlofshús eða orlofsávísun úthlutað.
Orlofsávísanirnar eru gefnar út í takmörkuðum fjölda og kosta félagsfólk 10 punkta. Orlofsávísanirnar gilda fyrir orlofstilboð innanlands sumarið 2026, frá 29. maí til 21. ágúst og verða því að vera nýttar innan þess tímabils. Félagi sem fær úthlutað orlofsávísun framvísar kvittunum eftir að ferð að eigin vali er lokið og fær andvirði orlofsávísunar greitt inn á bankareikning sinn. Kvittanir verða að vera löglegar frá viðkomandi söluaðila og innan tímabilsins 29. maí til 21. ágúst. Kvittanir verða að vera með nafni og kennitölu félagsmanns til þess að fást greiddar.
Hvað get ég notað orlofsávísun fyrir?
Orlofsávísun má nota innanlands fyrir:
- Gistingu utan orlofskerfis, þ.e. hótel, gistihús, tjaldstæði o.s.frv.
- Leigu fyrir hjólhýsi, fellihýsi, bílaleigubíl eða tjaldvagna.
- Skoðunarferðir, t.d. hvalaskoðun, fuglaskoðun o.þ.h.
- Skipulagðar gönguferðir með viðurkenndum ferðaþjónustuaðilum eða félögum, utan þeirra ferða sem félagið býður upp á.
- Skipulagðar hópferðir, hestaferðir, siglingar, veiðileyfi o.s.frv.
Ekki er hægt að framvísa kvittunum fyrir matarútgjöldum, bensíni og/ eða almennum ferðakostnaði, svo sem fargjaldi í flugi, rútu eða með ferju, nema það sé hluti af skipulagðri hópferð. Ekki er hægt að framvísa kvittunum úr sundlaugum eða baðstöðum. Ekki er hægt að framvísa kvittunum fyrir þjónustu sem Sameyki eða önnur stéttarfélög bjóða sínum félögum.
Senda skal kvittanir á netfangið orlof@sameyki.is
Óskað er eftir að kvittunum sé skilað í einu lagi. Við byrjum að greiða orlofsávísanirnar út í lok ágúst.“
Gjafabréf hjá Icelandair
Félagar í Sameyki geta keypt allt að fimm gjafabréf hjá Icelandair á hverju ári. Hvert gjafabréf kostar 22.500 kr. en er að andvirði 30.000 kr. inneignar.
Gjafabréfin gilda bæði í innanlands- og utanlandsflugi. Á gjafabréfinu er númer sem þarf að nota við bókun flugs.
Orlofssjóður Sameykis niðurgreiðir gjafabréfin. Þau eru seld á Orlofshúsavef Sameykis.
Flugfélagið Ernir
Félagar Sameykis sem hafa lögheimili á landsbyggðinni, þar sem Flugfélagið Ernir flýgur til, geta fengið endurgreiðslu á flugfargjaldi.
Endurgreiðslan getur numið allt að 33.000 kr. á ári. Framvísa þarf flugmiða með nafni félagsmanns og kvittun.