Orlofshús, úthlutanir og fleira
Á Orlofshúsavef Sameykis bókar þú og sækir um orlofshús og orlofsíbúðir. Þar er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, veiðikort, útilegukort, ferðaávísun og fleira þar sem stendur Gjafabréf í flug og fl. í valmyndinni. Einnig má finna afslátt á ýmsum vörum og þjónustu fyrir félagsfólk Sameykis, þar sem stendur Afslættir. Framvísa þarf félagsskírteini en það má finna inn á Mínar síður Sameykis.
Vetrarleiga
Breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi varðandi bókanir á orlofshúsum og íbúðum Sameykis á vetrartíma. Undanfarin ár hefur verið opnað fyrir leigu einn mánuð í einu, 5 mánuði fram í tímann innanlands og 6 mánuði fram í tímann erlendis. Þessu fyrirkomulagi hefur verið hætt og verður nú opnað fyrir leigu á vetrartíma í tvennu lagi. Opnað verður fyrir tímabilið 23. ágúst til og með áramóta (2. janúar 2025), þann 15. maí kl. 9:00 og verður svo opnað fyrir tímabilið 2. janúar 2025 fram að byrjun sumars 2025 þann 5. september kl. 9:00.
Umsóknir og úthlutun orlofshúsa páskar og sumar 2025
Staður | Umsóknartímabil | Úthlutað | Greiðslufrestur | 2. úthlutun | Almenn opnun |
Páskar erlendis | 20. des.-02. feb. | 4. feb. | 11. feb. | ||
Páskar innanlands | 01. feb.-02. mars | 5. mars | 12. mars | 13. mars kl.12 | 19. mars |
Sumar erlendis | 24. jan.-16. feb. | 19. feb. | 02. mars | 04. mars kl.12 | 11. mars |
Sumar innanlands | 28. feb.-24. mars | 28. mars | 06. apr. | 08. apr. kl. 12 | 15. apr. |
Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabili sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsfólks. Niðurstöður úthlutunar eru sendar í tölvupósti með tilgreindum greiðslufresti. Athugið! Félagsfólk í eftirlaunadeild getur ekki sótt um á tímabilinu 21. júní- 8. ágúst 2024, en geta sótt um þegar opnað verður fyrir allt félagsfólk eftir að úthlutun lýkur – fyrstur kemur fyrstur fær.
Páskar á Spáni 2025
Opið er fyrir páskaúthlutun á þremur orlofseignum Sameykis á Spáni frá 20. desember 2024 til 2. febrúar 2025 á Orlofshúsavef Sameykis. Um er að ræða raðhús við Los Cristianos á Tenerife, íbúð í Quesada í Alicante og íbúð við ströndina Los Arenales í Alicante.
- Umsóknartímabilið er 20. desember – 2. febrúar 2025.
- Úthlutun fer fram 4. febrúar 2025.
- Greiðslufrestur er til og með 11. febrúar 2025.
- Úthlutað verður eftirfarandi tímabilum:
- Tenerife: 10. apríl til 17. apríl og 17. apríl til 24. apríl. (fim -fim). Vikan kostar kr. 115.000.-
- Alicante: 10. apríl til 17. apríl og 17. apríl til 24. apríl. (fim- fim). Vikan kostar kr. 90.000.-
Páskar innanlands 2025
Umsóknartímabil er 1. feb. – 2. mars 2025 og hægt er að fylla út umsóknir á orlofsvefnum á þessu tímabili. Úthlutað verður 5. mars. Greiðslufrestur er til og með 12. mars 2025. Eftir það, 13. mars kl. 12.00, opnast bókunarvefurinn fyrir það félagsfólk sem fékk neitun til og með 18. mars 2025. Eftir það, 19. mars opnar fyrir alla félagmenn (fyrstur kemur fyrstur fær) til að bóka það sem er enn laust um páska.
Sumar á Spáni 2025
Umsóknartímabil er 24. janúar - 16. febrúar 2024, hægt er að fylla út umsóknir á bókunarvefnum á þessu tímabili. Úthlutað verður 19. febrúar 2025 eftir punktakerfi. Greiðslufrestur er til og með 02. mars 2025. Eftir það, 04. mars kl. 12.00, opnast bókunarvefurinn fyrir félagsfólk sem fékk neitun til og með 10. mars 2024. Eftir það, 11. mars er opið fyrir allt félagsfólk (fyrstur kemur fyrstur fær) til að bóka það sem er enn laust yfir sumarið.
Sumar - innanlands 2025
Umsóknartímabil er 28. feb. - 24. mars 2025 og hægt er að fylla út umsóknir á bókunarvefnum á þessu tímabili. Úthlutað verður 28. mars eftir punktakerfi. Greiðslufrestur er til og með 06. apríl 2025. Eftir það, 08. apríl kl. 12.00 opnast bókunarvefurinn fyrir það félagsfólk sem fékk neitun til og með 14. apríl 2024. Eftir það, 15. apríl er opið fyrir allt félagsfólk (fyrstur kemur fyrstur fær) til að bóka það sem er enn laust yfir sumarið.
Verð á miðum 2024 (eftir að uppfæra fyrir 2025)
Veiðikortið 6.300 kr. Útilegukortið 17.500 kr. Ferðaávísun, niðurgreiðsla orlofssjóðs 30% af kaupverði en að hámarki 15.000 kr. Gjafabréf Icelandair 21.500 kr. fyrir 30.000 kr. inneign.
Til þess að kaupa miða er farið inn á Orlofshúsavefinn og valið er Gjafabréf í flug og fl. í valmyndinni.
Félagsfólk getur haft samband við skrifstofu félagins í s. 525-8330 eða sent tölvupóst á sameyki@sameyki.is til frekari upplýsinga eða til að fá aðstoð. Allar nánari upplýsingar eru á Orlofshúsavef Sameykis.