Í lögum Sameykis er kveðið á um að orlofssjóður sé starfræktur. Um starfsemi sjóðsins skal setja reglur sem staðfestar skulu á aðalfundi. Aðalfundur mun einnig skipa stjórn sjóðsins. Orlofssjóður ber ábyrgð á rekstri og uppbyggingu orlofseigna félagsins auk framboðs á öðrum orlofsmöguleikum og eru þau auglýst í Orlofsblaðinu á hverju ári.
Stjórn orlofssjóðs 2024-2027
Eyþór Agnarsson - Klettabæ
Gunnlaugur Ísleifsson – Menntaskólanum við Sund
María Hlín Eggertsdóttir – Sýslumanninum á Vesturlandi
Skapti Jóhann Haraldsson – Dalskóla, Reykjavíkurborg
Sólveig Jóna Jónasdóttir – Landspítalanum
Reglur orlofssjóðs Sameykis samkv. 20. gr. laga Sameykis
1. gr. Nafn sjóðsins
Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Sameykis . Sjóðurinn er í eigu Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu. Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Tilgangur sjóðsins
Tilgangur sjóðsins er að auka möguleika félagsmanna á fjölbreytni í orlofsmálum, til dæmis með því að koma upp og reka orlofshús og íbúðir fyrir félagsmenn eða styrkja þá til annars konar orlofsdvalar.
3. gr. Tekjur sjóðsins
Tekjur sjóðsins eru:
a) Samningsbundin gjöld atvinnurekenda til sjóðsins.
b) Vaxtatekjur.
c) Leigugjöld af orlofshúsum og orlofsíbúðum.
4. gr. Greiðslur úr sjóðnum
Allar greiðslur úr sjóðnum aðrar en þær er varða daglegan rekstur hans, rekstrargjöld orlofshúsa/-íbúða, leigu orlofshúsa í eigu annarra og/eða til annarrar venjubundinnar starfsemi á vegum sjóðsins, skulu háðar samþykki stjórnar Sameykis. Á þetta einkum við um greiðslur sem ekki hafa áður verið hluti af hefðbundinni starfsemi sjóðsins, eða ef upphæðir teljast umtalsverðar miðað við þá starfsemi sem er á vegum hans á hverjum tíma.
5. gr. Stjórn sjóðsins
Stjórn sjóðsins skipa fimm fulltrúar kosnir á aðalfundi til þriggja ára í senn ásamt einum fulltrúa tilnefndum úr stjórn Sameykis. Formaður skal kjörinn af sjóðstjórn. Stjórn sjóðsins skal skrá fundargerðir yfir störf sín og setja úthlutunarreglur.
Stjórnin skal leggja úthlutunarreglurnar fyrir stjórn félagsins til samþykktar.
Stjórnarmönnum er ekki heimilt að sitja samfellt í stjórn lengur en þrjú kjörtímabil (9 ár).
6. gr. Rekstur sjóðsins og ávöxtun
Skrifstofa Sameykis sér um daglegan rekstur sjóðsins í umboði stjórnar hans. Fé sjóðsins skal ávaxta á sem tryggastan hátt.
7. gr. Ársreikningur og endurskoðun
Ársreikning sjóðsins skal birta með reikningum Sameykis og endurskoðaður með sama hætti og félagssjóður. Ársreikninginn skal leggja fram og afgreiða á aðalfundi með öðrum reikningum félagsins. Skýrsla yfir starfsemi sjóðsins skal fylgja skýrslu stjórnar Sameykis.
8. gr. Breytingar á reglum sjóðsins
Reglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi Sameykis og fer með þær breytingar eins og um lagabreytingar væri að ræða.
Samþykktar á aðalfundi Sameykis 25. mars 2021.