Námskeið fyrir þig
Sameyki býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félaga þeim að kostnaðarlausu. Nauðsynlegt er að skrá sig, fyrstur kemur fyrstur fær.
Flýtileiðir
Fjölbreytt námskeið í boði
Fræðsluhlaðborðið er öllu jafna kynnt í ágúst fyrir haustönn og í janúar fyrir vorönn. Fræðslan sem er í boði í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt er félagsfólki að kostnaðarlausu í flestum tilvikum. Fræðslan sem er í samstarfi við Framvegis miðstöð símenntunar, Farskóla Norðurlands vestra og Símey er félagsfólki að kostnaðarlausu.
Hvenær skráning á námskeið hefst getur verið misjafnt eftir fræðsluaðilum.
Námskeið framundan munu birtast hér á þessari síðu sem er ennþá í vinnslu. Á meðan má skoða námskeiðin hjá Starfsmennt hér.
Framvegis
Vefur FramvegisSameyki er í samstarfi við Framvegis miðstöð um símenntun varðandi framboð fræðslu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta haustið verða flestir viðburðir í húsi, ýmist hjá Framvegis Borgartúni 20, eða víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. En einnig verður boðið upp á fræðslu í fjarnámi og fá þátttakendur senda krækju á viðburði þegar nær dregur. Þau sem ekki eru vön fjarnámi eru hvött til að hafa samband við Framvegis og fá leiðbeiningar áður en viðburður sem þau skrá sig á hefst.
Þegar þú skráir þig á námskeið þarftu að smella á Skrá umsókn, annars skráist umsókn ekki. Skráning opnar kl. 10 miðvikudaginn 2. september 2026.
Nám, fræðsla og önnur þjónusta Starfsmenntar er án kostnaðar fyrir langflest félagsfólk Sameykis af því búið er að semja um greiðslur ýmist í kjarasamningum eða samstarfssamningum við sjóði, sjá nánar hér.
Hjá Starfsmennt finnurðu fjölbreytt úrval námskeiða sem miða að því að auka starfshæfni sem þarf í opinberum störfum. Starfshæfni er bæði almenn og sértæk. Þess vegna finnurðu námskeið til að efla sjálfstraust, auka færni í notkun upplýsingatækni og að efla seiglu í að takast á við breytingar. Allt þetta nýtist þvert á störf.
Námskeið og fyrirlestrar á Norðurlandi eystra
Vefur SímeyjarSameyki, Kjölur og Eining Iðja í samstarfi við Símey bjóða upp á spennandi viðburði fyrir félagsfólk á haustönn 2026 þeim að kostnaðarlausu, bæði á vefnum og í raunheimum. Dagskrá haustannar er í vinnslu og verður birt í ágúst.
Næstu námskeið
Námskeið og fyrirlestrar á Norðurlandi vestra
Vefur FarskólansSameyki, Kjölur, Aldan, Samstaða og Verslunarmannafélag Skagafjarðar í samstarfi við Farskólann - Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, bjóða upp á spennandi viðburði fyrir félagsfólk á haustönn 2026 þeim að kostnaðarlausu, bæði á vefnum og í raunheimum. Dagskrá haustannar er í vinnslu og verður birt í ágúst.
Vefnámskeið og veffyrirlestrar á Vestfjörðum
Vefur Fræðslumiðstöðvar VestfjarðaSameyki í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður upp námskeið fyrir félaga. Dagskrá haustannar er í vinnslu.