Framkvæmd könnunar

Framkvæmd Stofnunar ársins 2026

Könnunin Stofnun ársins 2026 er lögð fyrir í október-nóvember 2026. Gallup sér um framkvæmd könnunar og gagnavinnslu fyrir hönd Sameykis og samstarfsaðila. Könnunin er send út með tölvupósti og fer útsending fram í áföngum á nokkrum dögum.

Hverjir taka þátt?
Könnunin nær til starfsfólks ríkisins, starfsfólks Reykjavíkurborgar, félagsfólks Sameykis á öðrum vinnustöðum og starfsfólks þeirra sjálfseignarstofnana og fyrirtækja í almannaþjónustu sem taka þátt í könnuninni. Þátttökulistar eru unnir upp úr starfsmannalistum ríkis og Reykjavíkurborgar og félagaskrá Sameykis. Aðrir vinnustaðir sem taka þátt senda þátttökulista til Gallup.

Trúnaður og meðferð svara
Gallup annast gagnavinnslu og framkvæmd könnunarinnar fyrir Sameyki og fer með svör þátttakenda sem trúnaðarmál. Niðurstöður eru aldrei birtar fyrir færri en fimm svarendur.

Af hverju skiptir þátttaka máli?
Til þess að niðurstöður fyrir einstaka vinnustaði geti birst þarf svarhlutfall að vera nægilegt. Hvert svar skiptir því máli. Því fleiri sem taka þátt, því betri mynd fæst af því hvað gengur vel á vinnustaðnum og hvar þörf er á umbótum.

Niðurstöður úr Stofnun ársins 2026 verða birtar í febrúar 2027 á vef Sameykis.

Um könnunina

Í könnuninni er meðal annars spurt um stjórnun, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika, sjálfstæði í starfi, jafnrétti og ánægju í starfi. Hægt er að svara könnuninni á íslensku, ensku og pólsku.

Samstarfsaðilar

Stofnun ársins er samstarfsverkefni margra aðila; Sameykis, Skrifstofu kjara- og mannauðs­mála hjá ríkinu, Mannauðs- og starfs­­umhverfis­­sviðs borgar­innar og svo stofnan­anna og vinnu­staðanna sjálfra. Niður­stöður könnunar­innar veita afar mikil­vægar upp­lýsingar um starfs­umhverfi vinnu­staða og samanburð við aðrar stofnanir.

Markmið könnunarinnar

Markmið könnunarinnar er að fá skýra mynd af starfsumhverfi starfsfólks í almannaþjónustu, draga fram styrkleika vinnustaða og greina hvar tækifæri eru til umbóta. Niðurstöðurnar nýtast bæði starfsfólki og stjórnendum við að bæta starfsumhverfi og stjórnun.

Hvernig fer könnunin fram?

Þátttakendur fá sendan persónulegan hlekk á könnunina í tölvupósti frá Gallup. Útsending fer fram í áföngum og því geta nokkrir dagar liðið frá því fyrstu þátttakendur fá könnunina þar til hún hefur borist öllum. Spurninga­listinn er sá sami og notaður hefur verið undan­farin ár og niður­stöður því sambæri­legar við fyrri ár.

Hvernig eru þættirnir búnir til?

Þáttagreining (factor analysis) er notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem eru mældir.

Í megindráttum komu fram níu þættir, en þeir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd, ánægja og stolt og jafnrétti.

Vægi þáttanna í heildareinkunn ákvarðast af þáttagreiningunni (sjá mynd) en vinnustöðunum er síðan raðað eftir heildareinkunninni. Áreiðanleiki þáttanna (Cronbach's Alpha) er mikill og mældist hæstur fyrir stjórnun (0,95), en lægstur fyrir sveigjanleika (0,82).

Alls fengust gild svör frá nærri 18.000 einstaklingum og hafa svörin aldrei verið fleiri. Þar af voru rúmlega 11.000 svör frá starfsfólki ríkisstofnana, ríflega 6.000 svör frá starfsfólki Reykjavíkurborgar og ríflega 800 svör frá öðrum vinnustöðum. Svarhlutfall, gildir listar af endanlegu úrtaki, var tæplega 52%, sem er sama hlutfall og á síðasta ári.

Þátttökuskilyrði

Almennt er miðað við að þátttakendur séu í a.m.k. 20% starfshlutfalli og hafi starfað á vinnustaðnum í þrjá mánuði eða lengur. Þetta viðmið er notað svo svarendur séu betur í stakk búnir til að meta starfsumhverfi sitt með áreiðanlegum hætti.

Stofnanir sem uppfylla þátttökuskilyrði (35% svarhlutfall og að lágmarki 5 svör) komast á lista. Þessum stofnunum er skipt í flokka eftir eðli þeirra og stærð. Stofnanaflokkarnir eru þrír: starfsstaðir borgarinnar, ríkisstofnanir og svo fyrirtæki og sjálfseignarstofnanir.

Til að stofnun, starfsstaður eða fyrirtæki komi til greina í vali á Stofnun ársins þurfa svör að vera að lágmarki fimm og svarhlutfall að lágmarki 35% – þá er miðað við innsenda lista sem hlutfall af útsendum spurningalistum. Ef vinnustaður býður ekki öllu starfsfólki þátttöku eru þátttökuskilyrði önnur og þá eru auk þess gerðar kröfur um fjölda þátttakenda eftir því sem vinnustaðurinn stækkar.

Könnunin nær til allra starfsstaða Reykvíkurborgar, allra ríkisstofnana sem og til alls félagsfólks Sameykis sem er í 20% starfshlutfalli eða meira og hefur verið félagsfólk í a.m.k. þrjá mánuði. Félagsfólk Sameykis starfar víða, t.d. hjá ríki og sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum í annarri opinberri eigu. Þessir vinnustaðir eru einnig með í vali á Stofnun ársins svo fremi sem þeir uppfylli þátttökuskilyrðin (sjá ofan). Þá geta þessir vinnustaðir óskað eftir þátttöku í Stofnun ársins og boðið öllu starfsfólki að svara könnuninni.

Viltu vita meira?

Hjá Reykjavíkurborg verða niðurstöður starfsstaða birtar stjórnendum í skýrslu ef sviðið sem starfstaðurinn tilheyrir hefur náð 35% svarhlutfalli og að lág­marki hafi borist 5 svör frá starfs­staðnum.

Allar ríkis­stofnanir sem eru þátttakendur í könnuninni fá senda skýrslu með niðurstöðum svo fremi sem skilyrði um lágmarkssvörun séu uppfyllt (þ.e. 35% svarhlutfall og fimm svör að lágmarki). Hver stofnun fær saman­burð við stofnana­flokk og ríkis­stofnanir í heild.

Öðrum vinnu­stöðum og fyrir­tækjum sem tóku þátt fyrir allt starfs­fólk gefst kostur á að kaupa skýrslu frá Gallup, svo framar­lega sem skilyrði um svörun séu upp­fyllt (sbr. ofan).

Í skýrslunni sem vinnustaðir fá er borin saman meðaltals­einkunn hverrar spurningar hjá viðkomandi vinnustað við meðaltals­einkunn allra vinnustaða. Einnig eru breytingar frá síðustu mælingu skoðaðar þegar það á við.

Ef óskað er frekari upp­lýsinga má hafa samband við Tómas Bjarnason (tomas.bjarnason@gallup.is).