Framkvæmd Stofnunar ársins 2025

Þátttakendur í Stofnun ársins hafa aldrei verið fleiri en nú, en í ár tóku tæplega 18.000 þátt í könnuninni. Reykjavíkurborg er þátt­takandi í könnuninni með allt starfs­fólk í fjórða sinn en allt ríkis­starfs­fólk hefur tekið þátt síðan 2011. Niður­stöður verða í þremur stofnana­flokkum, líkt og síðustu ár. Flokkarnir eru: ríkis­stofnanir, starfs­staðir Reykja­víkur­borgar, og sjálfs­eignar­stofnanir og fyrir­tæki í almanna­þjónustu.

Um könnunina

Stofnun ársins var fram­kvæmd í október til desember 2025. Þátttökulistar (netfangalistar) ríkis­stofnanna komu almennt frá Skrifstofu kjara- og mann­auðsmála. Við gerð þátt­tökulista var miðað við að starfs­fólk væri starfandi í ágúst og október og væri í að lágmarki 20% starfs­hlutfalli. Listi yfir starfsfólk borgarinnar kom frá Mannauðs- og starfs­umhverfis­sviði borgarinnar.

Sjálfs­eignar­stofnanir, fyrir­tæki og fleiri vinnustaðir geta óskað eftir þátttöku fyrir allt starfsfólk óháð félags­aðild og senda þá þessir vinnu­staðir þátt­tökulista til Gallup. Sex slíkir vinnu­staðir tóku þátt í ár og greiða sjálfir fyrir þátt­töku starfs­fólks utan Sameykis. Þetta voru Ás styrktar­félag, Félags­bústaðir, Heilsu­stofnun NLFÍ, Lífeyris­sjóður starfs­manna ríkisins (LSR), Matís ohf. og Orkubú Vest­fjarða (OV).

Samstarfsaðilar

Stofnun ársins er samstarfsverkefni margra aðila; Sameykis, Skrifstofu kjara- og mannauðs­mála, Mannauðs- og starfs­­umhverfis­­sviðs borgar­innar og svo stofnan­anna og vinnu­staðanna sjálfra. Niður­stöður könnunar­innar veita afar mikil­vægar upp­lýsingar um starfs­umhverfi vinnu­staða og samanburð við aðrar stofnanir.

Í könnuninni er hægt að bera saman starfs­umhverfi ríkis og borgar með góðum hætti. Einnig er hægt að bera saman niður­stöður þessarar könnunnar við niður­stöður á al­menn­um markaði þar sem VR fram­kvæmir sam­bæri­lega könnun, „Fyrirtæki ársins,“ meðal félags­fólks VR og fyrir­tækja á almennum markaði.

Tilgangur könnunarinnar

Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mann­auðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að um­bótum í stjórnun og starfs­umhverfi. Að lokum veitir könnunin aðhald til hags­bóta fyrir starfs­fólk, skjól­stæðinga, viðskipta­vini og aðra hagsmuna­aðila.

Hvernig fer könnunin fram?

Spurningalisti er lagður fyrir starfs­fólk á netinu. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti, en þannig fæst heil­steypt mynd af innra starfs­umhverfi vinnu­staðanna. Spurninga­listinn er sá sami og notaður hefur verið undan­farin ár og niður­stöður því sambæri­legar við fyrri ár.

Hvernig eru þættirnir búnir til?

Þáttagreining (factor analysis) er notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem eru mældir.

Í megindráttum komu fram níu þættir, en þeir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd, ánægja og stolt og jafnrétti.

Vægi þáttanna í heildareinkunn ákvarðast af þáttagreiningunni (sjá mynd) en vinnustöðunum er síðan raðað eftir heildareinkunninni. Áreiðanleiki þáttanna (Cronbach's Alpha) er mikill og mældist hæstur fyrir stjórnun (0,95), en lægstur fyrir sveigjanleika (0,82).

Alls fengust gild svör frá nærri 18.000 einstaklingum og hafa svörin aldrei verið fleiri. Þar af voru rúmlega 11.000 svör frá starfsfólki ríkisstofnana, ríflega 6.000 svör frá starfsfólki Reykjavíkurborgar og ríflega 800 svör frá öðrum vinnustöðum. Svarhlutfall, gildir listar af endanlegu úrtaki, var tæplega 52%, sem er sama hlutfall og á síðasta ári.

Þátttökuskilyrði

Stofnanir sem uppfylla þátttökuskilyrði (35% svarhlutfall og að lágmarki 5 svör) komast á lista. Þessum stofnunum er skipt í flokka eftir eðli þeirra og stærð. Stofnanaflokkarnir eru þrír: starfsstaðir borgarinnar (274 starfsstaðir), ríkisstofnanir (139 stofnanir) og svo fyrirtæki og sjálfseignarstofnanir (7 fyrir­tæki/sjálfs­eignar­stofnanir). Þessi hluti könnunar­innar byggir á 8.949 svörum frá starfs­fólki ríkisins, 5.482 svörum frá starfsfólki borgarinnar og 463 svörum frá starfsfólki sjálfseignarstofnana og fyrirtækja.

Til að stofnun, starfsstaður eða fyrirtæki komi til greina í vali á Stofnun ársins þurfa svör að vera að lágmarki fimm og svarhlutfall að lágmarki 35% – þá er miðað við innsenda lista sem hlutfall af útsendum spurningalistum. Ef vinnustaður býður ekki öllu starfsfólki þátttöku eru þátttökuskilyrði önnur og þá eru auk þess gerðar kröfur um fjölda þátttakenda eftir því sem vinnustaðurinn stækkar.

Könnunin nær til allra starfsstaða Reykvíkurborgar, allra ríkisstofnana sem og til alls félagsfólks Sameykis sem er í 20% starfshlutfalli eða meira og hefur verið félagsfólk í a.m.k. þrjá mánuði. Félagsfólk Sameykis starfar víða, t.d. hjá ríki og sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum í annarri opinberri eigu. Þessir vinnustaðir eru einnig með í vali á Stofnun ársins svo fremi sem þeir uppfylli þátttökuskilyrðin (sjá ofan). Þá geta þessir vinnustaðir óskað eftir þátttöku í Stofnun ársins og boðið öllu starfsfólki að svara könnuninni.

Viltu vita meira?

Hjá Reykjavíkurborg verða niðurstöður starfsstaða birtar stjórnendum í skýrslu ef sviðið sem starfstaðurinn tilheyrir hefur náð 35% svarhlutfalli og að lág­marki hafi borist 5 svör frá starfs­staðnum.

Allar ríkis­stofnanir sem eru þátttakendur í könnuninni fá senda skýrslu með niðurstöðum svo fremi sem skilyrði um lágmarkssvörun séu uppfyllt (þ.e. 35% svarhlutfall og fimm svör að lágmarki). Hver stofnun fær saman­burð við stofnana­flokk og ríkis­stofnanir í heild.

Öðrum vinnu­stöðum og fyrir­tækjum sem tóku þátt fyrir allt starfs­fólk gefst kostur á að kaupa skýrslu frá Gallup, svo framar­lega sem skilyrði um svörun séu upp­fyllt (sbr. ofan).

Í skýrslunni sem vinnustaðir fá er borin saman meðaltals­einkunn hverrar spurningar hjá viðkomandi vinnustað við meðaltals­einkunn allra vinnustaða. Einnig eru breytingar frá síðustu mælingu skoðaðar þegar það á við.

Ef óskað er frekari upp­lýsinga má hafa samband við Tómas Bjarnason (tomas.bjarnason@gallup.is).