Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Úthlutunarreglur starfsmenntunarstyrkja

Gilda frá 22. mars 2022

1. Um sjóðinn og rétt félagsmanna

1.1. Um sjóðinn
Starfsemi sjóðsins byggir á reglum, sem settar eru samkvæmt 20. gr. laga Sameykis, sem samþykktar voru á aðalfundi Sameykis 17. september 2020.

1.2. Réttur til að sækja um styrki
1.2.1. Þegar atvinnurekandi hefur greitt iðgjöld í sjóðinn í 6 mánuði af síðustu 12 öðlast félagsmaður aðild að sjóðnum.

1.2.2. Félagsmaður þarf að vera í starfi bæði þegar hann sækir um styrk og notar hann.

1.2.3. Félagsmaður sem ekki hefur íslensku að  móðurmáli getur sótt um styrk vegna íslenskukennslu eftir að hafa greitt félagsgjald í einn mánuð, þó aldrei hærri upphæð en hámarksréttur segir til um.

1.2.4. Félagsmaður í atvinnuleit/fæðingarorlofi getur nýtt sér áunninn rétt ef hann velur að greiða stéttarfélagsgjöld í atvinnuleit/fæðingarorlofi.

1.2.5. Falli greiðslur í sjóðinn niður vegna veikinda, foreldraorlofs eða launalauss leyfis skal meðhöndla þann tíma eins og um greiðslur hafi verið að ræða svo framarlega sem ráðningarsamband sé virkt, skila þarf inn staðfestingu atvinnurekanda á því.

1.2.6. Félagsmaður sem lætur af störfum vegna aldurs heldur aðild að sjóðnum í 6 mánuði eftir að greiðslu iðgjalda lýkur.

1.2.7. Lok aðildar. Réttindi falla niður 2 mánuðum eftir að síðasta greiðsla í sjóðinn berst.

2. Styrkhæft nám/námskeið
Nám á framhalds- og háskólastigi og nám sem eykur almenna starfshæfni á sviði tölvutækni og tungumála er styrkhæft óháð starfi. Starfstengdar ráðstefnur eru styrkhæfar. Einnig er veitt ákveðin styrkupphæð vegna skipulagðra náms- og kynnisferða sem tengjast starfi, lífsleikninámskeiða og starfsréttindanáms án beinnar tengingar við starf.

2.1. Hvað er styrkt?
Skóla-, námskeiðs- og ráðstefnugjald, raunfærnimat og faglega skipulagðar náms- og kynnisferðir. Greitt er vegna hótel- og gistikostnaðar og flugfargjalda í tengslum við námsferðir erlendis. Ekki er veittur styrkur vegna slíkra ferða fyrir maka, barn/börn eða aðra nákomna þrátt fyrir að sá aðili sé félagsmaður Sameykis og sjóðsfélagi. Veittir eru staðlaðir styrkir vegna ferða- og gistikostnaðar innanlands (sbr. 3.1.5). Félagsmaður skal leitast við að finna sem hægstæðust kjör á flugi og gistingu.

2.2. Hvað er ekki styrkt?
Uppihald (fæðiskostnaður), ferðir innan borga og sveitarfélaga, bílaleigubíll, bensínkostnaður, launatap, námsgögn.

3. Styrkupphæð
Við ákvörðun upphæðar styrkja er miðað við greidd félagsgjöld síðastliðna 12 mánuði. Til að fá fullan styrk skulu félagsgjöldin vera a.m.k. 20.000 kr. samtals . Hálfur styrkur er veittur þeim sem hafa greitt samtals 19.999 kr. eða minna í félagsgjöld síðastliðna 12 mánuði.

Greitt er að hámarki 140.000 kr. samtals í styrk á 24 mánaða tímabili úr sjóðnum. Aldrei eru greiddir hærri styrkir en sem nemur framlögðum reikningum. Ef um er að ræða hálfan styrk, þegar félagsgjöld eru lægri en 20.000 kr sl. 12 mánuði, er styrkur að hámarki 70.000 kr.

Eftirfarandi hámarksupphæðir gilda um neðangreindar styrkveitingar:
3.1. Náms- og kynnisferðir erlendis, hámark 110.000 kr. á 24 mánaða tímabili. Skipulögð fræðsludagskrá þarf að liggja fyrir og vera að lágmarki 8 klukkustundir af faglegri fræðslu.

3.2. Náms- og kynnisferðir innanlands, hámark 55.000 kr. á 24 mánaða tímabili. Skipulögð fræðsludagskrá þarf að liggja fyrir og vera að lágmarki 6 klukkustundir af faglegri fræðslu.

3.3. Námskeið til starfsréttinda án beinnar tengingar við starf, hámark 100.000 kr. á 24 mánaða tímabili.

3.4. Lífsleikninámskeið án beinnar tengingar við starf, hámark 40.000 kr. á 24 mánaða tímabili.

3.5. Ferða- og gististyrkir innanlands. Ef vegalengd frá lögheimili að námsstað eða millilandaflugvelli er lengri en 100 km eru greiddar 15.000 kr. að hámarki á 24 mánaða tímabili., ef sama vegalengd er lengri en 250 km eru greiddar 30.000 kr að hámarki á 24 mánaða tímabili. Skila þarf inn staðfestingu á mætingu frá skóla/fræðsluaðila (t.d. mæting í staðlotu).

4. Umsóknir og greiðsla styrks

4.1. Umsóknir og fylgiskjöl
Senda þarf inn rafræna umsókn í gegnum Mínar síður Sameykis á www.sameyki.is. Reikninga, greiðslukvittanir og önnur fylgigögn skal hengja á rafrænu umsóknina eða senda á starfsmenntun@sameyki.is. Einnig er hægt að skila þeim á skrifstofu Sameykis, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.

4.2. Staðfesting á náms- og kynnisferð
Sé sótt um styrk vegna skipulagðrar náms- og kynnisferðar þarf til viðbótar reikningi að framvísa áritaðri staðfestingu á þátttöku frá yfirmanni eða umsjónarmanni ferðarinnar. Í staðfestingunni skal ferðinni lýst og tilgangur hennar útskýrður. Ef um er að ræða náms- eða kynnisferð erlendis, þarf að leggja fram staðfestingu frá viðkomandi aðila/aðilum erlendis á ítarlegri dagskrá sem skal vera að lágmarki 8 klst. af faglegri fræðslu. Umsóknir eru ekki samþykktar ef leiðbeinandi fer frá Íslandi til að halda námskeið/kynningu á erlendri grundu. Náms- og kynnisferðum innanlands skal fylgja staðfest ítarleg dagskrá að lágmarki 6 klst. af faglegri fræðslu. Í báðum tilvikum skal gera grein fyrir hvaða staðir verða heimsóttir, efni kynninga á hverjum stað og tímasetningar. Umsókn þarf einnig að fylgja áætlaður fjöldi Sameykisfélaga sem taka þátt í viðkomandi ferð. Umsækjanda ber að tilkynna forföll til sjóðsins. Styrkur er eingöngu veittur til sjóðsfélaga sem starfar hjá þeirri stofnun/fyrirtæki sem skipuleggur kynnisferðina.

4.3.Útborgun styrks
Greiðsla er innt af hendi gegn framvísun reiknings og greiðslukvittunar sem sýnir að reikningur er sannanlega greiddur af umsækjanda sjálfum. Almennt er ekki gerð krafa um frumrit, en stjórn sjóðsins áskilur sér þó rétt til þess ef þörf er talin á. Ef annar aðili, t.d. fyrirtæki, stofnun eða samstarfsfélagi, leggur út fyrir kostnaði þá þarf viðkomandi styrkumsækjandi að sýna fram á að hann hafi endurgreitt þeim aðila sinn hluta kostnaðar. Ekki er unnt að skila inn reikningi sem er eldri en 12 mánaða.
Styrkir úr sjóðnum eru greiddir eins fljótt og aðstæður leyfa hverju sinni. Alla jafna er greitt í lok hverrar viku. Forsenda greiðslu er að fulltrúi eða stjórn Starfsmenntunarssjóðs hafi samþykkt umsókn og að nauðsynleg fylgigögn hafi borist í tíma. Stjórn Starfsmenntunarsjóðs Sameykis sker úr um vafaatriði og getur lækkað styrki taki aðrir þátt í kostnaði.
Greiðslutilkynning er hengd við umsókn þegar styrkur er greiddur út og hægt er að nálgast hana inni á mínum síðum, þar sem einnig má fylgjast með afgreiðslu umsóknar.

4.4. Frágangur umsókna og afgreiðsla.
Félagsmaður skal vanda frágang umsóknar, vel útfyllt umsókn er forsenda fyrir afgreiðslu styrkja. Þegar leggja þarf umsókn fyrir fund stjórnar sjóðsins er niðurstaða tilkynnt með tölvupósti þar sem fram kemur hvaða gögnum þarf að framvísa til að fá styrkinn greiddan. Ef öll gögn hafa borist bíður umsókn næsta greiðsludags.

5. Tíðni styrkveitinga, fyrning og fleira

5.1. Tíðni styrkveitinga. Félagsmaður með full réttindi (sjá gr. 1.2 og 3) getur fengið hámarksstyrk á 24 mánaða tímabili 140.000 kr. Þannig getur félagsmaður sótt um fleiri en einn styrk á tímabilinu, þar til hámarksupphæð er náð.

5.2. Sótt um aftur í tímann. Umsókn um styrk verður að berast innan árs frá lokum náms/verkefnis. Ekki er þó unnt að skila inn reikningi sem er eldri en 12 mánaða.

5.3. Fyrning styrkveitingar. Ef umsækjandi hefur ekki skilað nauðsynlegum gögnum innan 12 mánaða frá því umsókn var send inn fyrnist réttur til greiðslu.

5.4. Tvígreiðsla eða ofgreiðsla. Ef mistök verða í afgreiðslu styrkumsóknar eða við greiðslu styrks munu starfsmenn sjóðsins leitast við að leiðrétta þau eins fljótt og hægt er. Félagsmaður skal tilkynna sjóðnum ef um ofgreiðslu er að ræða og endurgreiða ofgreidda upphæð þegar í stað.

5.5.Réttur til að hætta við umsókn. Ef umsækjandi nýtir ekki vilyrði fyrir styrk eða dregur umsókn sína til baka áður en styrkur er greiddur þá hefur umsóknin engin áhrif á réttindi umsækjanda hjá sjóðnum.

5.6.Upplýsingar til skattyfirvalda. Veittir styrkir vegna fræðslu eru forskráðir í skattskýrslu. Félagsmaður skal varðveita frumrit reiknings vegna þess kostnaðar sem styrkur hefur fengist fyrir til að afhenda skattyfirvöldum sé þess óskað. Heimilt er að skrá kostnað á móti þegar framtali er skilað samkvæmt reglum ríkisskattstjóra.

6. Forgangur
Ef sjóðsþurrð verður eða sjóðurinn stendur illa að mati sjóðsstjórnar miðað við tekjur og væntanlegar skuldbindingar skulu þeir njóta forgangs sem aldrei hafa hlotið styrk hjá sjóðnum. Ef ennþá er þörf á forgangsröðun er sjóðsstjórn heimilt að gefa starfstengdum verkefnum forgang umfram önnur.

7. Málskotsréttur
Félagsmaður á ávallt rétt á að vísa erindi sínu á ný til stjórnar sjóðsins ef hann er ósáttur við afgreiðslu á umsókn sinni. Stjórnin skal þá fjalla um umsóknina aftur á næsta fundi.

8. Gildistökuákvæði
Reglur þessar eru samþykktar af stjórn starfsmenntunarsjóðs 22. mars 2022 og taka gildi frá og með þeim degi. Við gildistökuna falla úr gildi eldri starfsreglur og aðrar ákvarðanir sem ekki eru í samræmi við reglur þessar. Reglurnar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni, út frá fjárhagsstöðu sjóðsins.