Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Starfsendurhæfing VIRK

Þjónusta VIRK er fyrir einstaklinga sem búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests og stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. Tilgangur þjónustu VIRK er að aðstoða fólk við að komast aftur í vinnu.
Halda áfram

Þjónusta VIRK

Er fyrir einstaklinga sem búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests og stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. Tilgangur þjónustu VIRK er að aðstoða fólk við að komast aftur í vinnu. Um er að ræða markvissa ráðgjöf sem snýr að starfsendurhæfingu og krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings. Þjónustan er ferli sem felur í sér greiningu á stöðu og möguleikum eftir verkferlum VIRK.

Skilyrði fyrir þjónustu frá VIRK

  • Að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa. Um er að ræða fjarvistir frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða líkamlegum toga.
  • Að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða má.
  • Geta og vilji sé til staðar til að taka markvissan þátt í starfsendurhæfingunni. Viðkomandi þarf að vera fær um að axla ábyrgð á eigin lífi, geta tekið þátt í athöfnum daglegs lífs og sinnt nauðsynlegum þáttum endurhæfingar/starfsendurhæfingar.
  • Þjónustan sé líkleg til árangurs á þeim tíma sem hún er veitt.
  • Samráð sé við viðeigandi aðila, s.s. heimilislækni, meðferðaraðila og atvinnurekanda þegar við á.
  • Sjá nánar um þjónustuna hér á vef VIRK

Hvernig óska á eftir þjónustu VIRK?

Þjónusta VIRK er einstaklingum að mestu að kostnaðarlausu.
Hér má lesa nánar um hvernig er óskað eftir þjónustu VIRK.

 

Ráðgjafar VIRK og þjónusta sem þeir geta veitt

Í BSRB húsinu starfa fjórir ráðgjafar sem þjónusta félagsmenn Sameykis en einnig eru starfandi ráðgjafar hringinn í kringum landið. Hér má nálgast lista yfir ráðgjafa.

Fljótlega eftir að einstaklingur hefur þjónustu hjá VIRK er mál hans tekið fyrir af þverfaglegu teymi til að tryggja sem besta þjónustu. Í framhaldi er sett upp einstaklingsmiðuð áætlun til starfsendurhæfingar. Í þverfaglegu teymi starfa m.a. læknar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, iðjuþjálfar og félagsráðgjafar allt eftir þörfum hvers og eins.

Þjónustan getur meðal annars falið í sér leiðbeiningar um réttindi, hvatningu, aðstoð og eftirfylgni, tengingu og samvinnu sérfræðinga ásamt samstarfi milli starfsmanns og atvinnurekanda.

 

Er brjálað að gera?

Kíktu á www.velvirk.is sem er hluti af forvarnarverkefni VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs helgaður því að vinna saman að jafnvægi í lífinu og vellíðan í vinnu til að sporna gegn brotthvarfi af vinnumarkaði venga heilsubrests.