Úthlutunarreglur um sjúkradagpeninga
Nýjar úthlutunarreglur sem taka gildi frá og með 1. janúar 2024
Gilda frá 1. janúar 2023
1. Hver á rétt á styrk?
1.1. Félagsfólk þarf að greiða félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 mánuði samfellt fyrir umsóknardag til að öðlast rétt á styrkjum. Umsóknir miðast við þá dagsetningu sem umsókn er afgreidd.
1.2. Styrkir eru ekki veittir vegna kostnaðar sem stofnað var til áður en starf það hófst sem gefur rétt til aðildar að sjóðnum. Reikningar sem fylgja umsókn geta að hámarki verið 12 mánaða gamlir nema annað sé tekið fram í reglu um styrk.
1.3. Tekið er tillit til ávinnslu og nýtingu styrkja félagsfólks sem áður var í Styrktarsjóði BSRB.
1.4. Félagsfólk þarf að vera í starfi þegar sótt er um styrki og uppfylla skilyrði sjóðsins.
1.5. Almennt eru ekki greiddir styrkir vegna heilbrigðiskostnaðar sem fellur undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands, þ.m.t
aðgerðir/meðferðir á einkastofum sem einnig eru framkvæmdar í almenna heilbrigðiskerfinu. Ekki er greiddur kostnaður vegna fegrunaraðgerða.
1.6. Félagsfólk í atvinnuleit getur nýtt sér áunninn rétt ef það velur að greiða stéttarfélagsgjöld meðan á atvinnuleit stendur. Atvinnuleitendur ávinna sér ekki rétt á meðan á atvinnuleit stendur, en viðhalda þeim rétti sem þau höfðu áunnið sér þegar þeir voru í starfi. Óslitinn félagsaðild þarf að vera frá því að ráðningarsambandi lauk og greiðslur frá Vinnumálastofnun berast. Ekki eru greiddir dagpeningar eða styrkir ef rof er á þessu tímabili.
1.7. Félagsfólk í fæðingar- eða foreldraorlofi getur nýtt sér áunninn rétt ef þau velja að greiða stéttarfélagsgjöld meðan á orlofi stendur.
1.8. Félagsfólk heldur réttindum sínum í sjóðnum á meðan þau nýta veikindarétt sinn og það tímabil sem þau fá greidda sjúkradagpeninga.
1.9. Styrkir eru eingöngu fyrir félagsfólk sjálft en ekki aðra fjölskyldumeðlimi.
1.10. Sjóðfélagi sem hættir störfum vegna aldurs eða örorku á rétt í 6 mánuði eftir starfslok.
2. Styrktar eru eftirfarandi meðferðir, forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir:
2.1. Sjúkraþjálfun, sjúkranudd, hnykklækningar
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt fær styrk til göngugreiningar, sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, hnykklækninga (kiropraktor) eða sambærilegrar meðferðar. Greitt er 50% af reikningi að hámarki 32.000 krónur á hverju 12 mánaða tímabili.
Einnig er hægt að sækja um styrk vegna þjálfunar hjá Hjarta- og lungnastöðinni eða sambærilegum stofnunum ekki er greiddur styrkur
vegna kaupa á innleggjum.
2.2. Krabbameinsleit og hjartavernd
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt fær styrk fyrir venjubundna krabbameinsskoðun einu sinni á 12 mánaða tímabili. Leghálsstrok eingöngu greitt kr. 5.610.- eða brjóstamynd eingöngu greitt kr. 5.610.-
Leghálsstrok- og brjóstamyndun í sömu skoðun 10.000 kr. (sem er hámarksstyrkur vegna venjubundinnar krabbameinsleitar á hverju 12 mánaða tímabili.)
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt getur fengið styrk fyrir framhaldsrannsóknum vegna krabbameins allt að 10.000.kr. á 12 mánaða tímabili.
Einnig getur félagsfólk fengið styrk til krabbameinsskoðunar í ristli og blöðruhálskirtli að hámarki 10.000.kr.
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt getur fengið styrk fyrir áhættumatsskoðun hjá Hjartavernd, Heilsuvernd og Greenfit að hámarki 20.000 kr. einu sinni á 12 mánaða tímabili.
2.3. Sálfræði-, félags- og fjölskylduráðgjöf
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt fær styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum viðurkenndum meðferðaraðilum: Félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa, sálfræðingi eða listmeðferðarfræðingi.
Ekki er greitt fyrir viðtal hjá geðlækni þar sem það fellur undir afsláttarkort Sjúkratrygginga Íslands. Ekki er heldur greiddur styrkur ef sálfræðitími er niðurgreiddur hjá heilsugæslu.
Greitt er 50% af reikning að hámarki 80.000 kr. á 12 mánaða tímabili.
2.4. Dvöl á heilsustofnun
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt fær styrk vegna meðferðar á heilsustofnun. Greiddar eru 3.750 kr. á dag fyrir allt að 28 daga á 12 mánaða tímabili.
2.5. Líkamsrækt
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt fær styrk að hámarki 23.000 kr. á 12 mánaða tímabili. Reikningar eru viðurkenndir frá eftirtöldum aðilum: Líkamsræktarstöðum, sundstöðum, skíðastöðum eða íþróttafélagi. Einnig önnur líkamsrækt sem telst sambærileg að dómi sjóðsstjórnar. Hvers konar búnaður er ekki styrktur af sjóðnum.
2.6. Augnaðgerðir og gleraugu
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt getur sótt um styrk á 36 mánaða fresti til „laser" og augasteins aðgerðar á öðru auga 50.000 kr. eða 100.000 kr. fyrir bæði augu. Einnig er veittur styrkur vegna gleraugna- eða linsukaupa einu sinni á 36 mánaða fresti. Greidd eru 20% af heildarverði reiknings sem er að upphæð 10.000 kr. eða hærri. Styrkur vegna gleraugnakaupa/linsukaupa getur þó ekki orðið hærri en 30.000 kr.
2.7. Tannviðgerðir
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt getur sótt einu sinni um styrk vegna tannlæknakostnaðar á 24 mánaða fresti. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem er umfram 50.000 kr., að hámarki 150.000 kr. Dæmi : Ef reikningi að upphæð 140.000 er skilað inn er endurgreiðslan 45.000 krónur ( 140.000-50.000 = 90.000 *0,5 = 45.000 krónur ) Skila má inn nótum frá líðandi ári og árinu á undan. Til skýringar félagsfólk sem sækir um styrkinn í október 2022 má skila inn öllum nótum frá 2022 og 2021. 24 mánuðum seinna má hann sækja um aftur, árið 2024 og þá eru allar 2024 og 2023 nótur gildar.
2.8. Heyrnartæki
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt getur sótt um styrk á 36 mánaða fresti til kaupa á heyrnartækjum. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem er umfram 50.000 kr., þó að hámarki 150.000 kr.
2.9. Tæknifrjóvgun
Félagsfólk sem hefur greitt félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og þar af 3 síðustu samfellt getur fengið endurgreitt 30% af reikningi vegna smásjár- eða glasafrjóvgunarmeðferða (lyf eru ekki innifalin).
Hámarksstyrkur er 150.000 kr. á 12 mánaða tímabili.
2.10. Ferðastyrkur
Sjóðurinn tekur þátt í ferðakostnaði félagsfólks sem þurfa að fara landshluta á milli til aðgerða eða rannsókna að læknisráði vegna þeirra sjálfra, maka þeirra eða barna, enda hafi verið greitt vegna þeirra í sjóðinn í 6 mánuði af síðustu 12 og þar af síðustu 3 mánuði samfellt. Sækja verður um styrk til Sjúkratrygginga Íslands. Sé þeirri beiðni hafnað greiðir sjóðurinn 10.000 kr. fyrir 250 - 400 km akstur, 15.000 kr. fyrir 400 – 600 km akstur, 20.000 kr. fyrir 600 – 800 km akstur og 25.000 kr. fyrir 800 km akstur eða meira. Miðað er við ferðalag fram og til baka. Greitt verður að hámarki fyrir þrjár ferðir á hverju 12 mánaða tímabili. Sjóðstjórn er heimilt að víkja frá þessum viðmiðunum ef fyrir því liggja ríkar ástæður. Skila verður inn höfnun frá Sjúkratryggingum ásamt staðfestingu á læknisheimsókn.
3. Aðrir styrkir
3.1.Fæðingarstyrkur
Sjóðfélagi sem hefur verið starfandi síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns og hefur gildan ráðningarsamning við upphaf fæðingarorlofs á rétt á styrk. Við útreikning upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld í sjóðinn síðustu 12 mánuði, ef félagsgjaldaupphæð nær 50.000 kr. er styrkurinn 240.000 kr. Nái félagsgjaldupphæðin ekki þessu marki lækkar styrkurinn hlutfallslega miðað við greidd félagsgjöld.
3.1.1. Foreldrar sem eru félagsfólk í Sameyki eiga rétt á styrk séu þau aðilar að sjóðnum og uppfylla skilyrði um sjóðsaðild.
3.1.2. Séu báðir foreldrar í Sameyki, sækja þau um hvort í sínu lagi.
3.1.3. Styrkurinn er tvöfaldur við tvíburafæðingu og þrefaldur við þríburafæðingu.
3.1.4. Styrkurinn lækkar í hlutfalli við skert iðgjöld í viðmiðunar upphæð sem tekur breytingum í takt við launavístölu í upphafi hvers árs.
3.1.5. Um ættleiðingar gilda sömu reglur og ef um venjulega fæðingu væri að ræða fyrir börn yngri en 5 ára.
3.1.6. Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu og andvana fæðingu er greiddur út hálfur fæðingarstyrkur.
3.1.7. Umsókn þarf að hafa borist innan 18 mánaða frá fæðingu barns/barna að því gefnu að umsækjandi sé fullgildur félagi samkvæmt
reglum sjóðsins.
Fæðingarstyrkur er eingöngu veittur til foreldris gegn framvísun fæðingarvottorðs frá Þjóðskrá Íslands.
3.2. Dánarbætur
Greiddur er 200.000 kr. útfararstyrkur enda hafi hinn látni verið sjóðfélagi í 12 mánuði fyrir andlát. Enn fremur greiðir sjóðurinn
útfararstyrk að fjárhæð 100.000 kr. vegna andláts fyrrverandi sjóðfélaga allt að 5 árum eftir að þeir hafa hætt störfum vegna aldurs eða örorku.
Þá er greiddur styrkur til félagsmanna vegna andláts barna þeirra 18 ára og yngri krónur 100.000. Styrkurinn er greiddur til þess sem útförina annast. Dánarbætur greiðast til lögerfingja. Skila þarf inn yfirliti um framvindu skipta frá Sýslumanni ásamt reikningi fyrir útför.
4. Sérstakar aðstæður
Heimilt er, eftir mati sjóðstjórnar hverju sinni, að veita styrk vegna sérstakra aðstæðna sem hafa í för með sér launamissi eða veruleg fjárútlát félagsfólks vegna veikinda hans sjálfs eða nánustu fjölskyldu. Allar umsóknir vegna sérstakra aðstæðna þurfa að fara fyrir fund stjórnar Styrktar- og sjúkrasjóðs sem fjallar um þær.
5. Hvernig er greitt úr sjóðnum
Gögn: Nauðsynleg gögn verða að liggja fyrir til að félagsfólk geti fengið greitt úr sjóðnum. Þessi gögn eru: Sundurliðaður reikningur, sem sannanlega er greiddur með nafni umsækjanda og kennitölu. Á reikningnum þarf að vera áritun/stimpill/merki þess er gefur reikninginn út með upplýsingum um nafn, kennitölu og heimilisfang eða símanúmer. Fjöldi skipta og dagsetningar meðferða eða kaupa á vöru eða þjónustu skal koma fram á reikningi. Athygli skal vakin á að kvittanir eða meðferðardagsetningar mega aldrei vera eldri en 12 mánaða, frá því að sótt er um og gögnum skilað inn. Undanskilið eru tannlæknakvittanir.
Greiðslukvittunum skal skila rafrænt á Mínum síðum.
Styrkir eru forskráðir á skattaskýrslu. Heimilt er að skrá kostnað á móti vegna líkamsræktar þegar framtali er skilað samkvæmt reglum
ríkisskattstjóra.
6. Hvernig er sótt um styrk?
Til að umsókn fari í vinnslu þarf bæði að fylla út rafræna umsókn og skila inn fylgigögnum. Rafræn umsókn er fyllt út hér inni á Mínum síðum Sameykis. Reikninga og/eða greiðslukvittanir og önnur fylgigögn skal senda rafrænt sem viðhengi inni á Mínar síður.
Fyrirvari: Stjórn sjóðsins áskilur sér allan rétt til að breyta reglunum ef þörf krefur, hvort sem er til þrengingar eða útvíkkunar. Fjármagn í sjóðnum verður látið ráða því á hverjum tíma.
Stjórnin áskilur sér rétt til breytinga á reglum þessum án fyrirvara.