Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Ferðakostnaður trúnaðarmanna

Reglur fyrir ferða- og dvalarkostnað ásamt rafrænni umsókn.
Halda áfram

Reglur Sameykis um ferða- og dvalarkostnað trúnaðarmanna vegna trúnaðarmannafunda og trúnaðarmannafræðslu.

Trúnaðarmenn, sem sækja fundi á vegum Sameykis og eru ekki búsettir á Reykjavíkursvæðinu, skulu fá greiddan ferða- og dvalarkostnað samkvæmt eftirfarandi reglum:

  • Trúnaðarmenn skulu ferðast með eins ódýrum hætti og mögulegt er.
  • Trúnaðarmenn skulu fá greitt andvirði flugfargjalds, þar sem hægt er að nota flugsamgöngur. Annað hvort skal nýta flugkort Sameykis og panta flug í gegnum skrifstofu Sameykis eða þá að trúnaðarmaður bókar sjálfur ódýrt flug á netinu og fær endurgreitt.
  • Þar sem ekki eru flugsamgöngur skulu greiðslur vera 60% af kílómetragjaldi (+vegatollar).
  • Í þeim tilvikum sem trúnaðarmaður getur ekki ferðast fram og til baka samdægurs, skal félagið sjá honum fyrir gistingu. Tilkynna ber félaginu með 4 daga fyrirvara ef gistingar er þörf.
  • Ef trúnaðarmenn þurfa að dvelja lengur en fundadag(a) í Reykjavík, skal félagið sjá þeim fyrir fæði eða greiða þeim fæðiskostnað sem er kr. 2.000.- í hálfan dag og kr. 4.000.- í heilan dag.
  • Ef þörf krefur greiðir félagið leigubílakostnað samkvæmt kvittun til og frá flugvelli í Reykjavík eða andvirði þess.
  • Í þeim tilvikum sem ofanritaðar reglur ná ekki til, skal samið sérstaklega fyrirfram um greiðslur við skrifstofu Sameykis.

 

Rafræn umsókn