Hlutverk og verkefni trúnaðarmanna
- Standa vörð um kjör og réttindi starfsfólks/ félagsfólks.
- Vera fulltrúi Sameykis á vinnustað hvað varðar framkvæmd kjarasamnings og réttargæslu félagsfólks.
- Koma upplýsingum á framfæri við starfsfólk, bæði frá stéttarfélagi og atvinnurekanda.
- Vinna að lausn vandamála sem kunna að koma upp á vinnustað og óska eftir aðstoð starfsfólks Sameykis ef þarf.
- Vera fulltrúi í samstarfsnefnd á vinnustað vegna endurskoðunar stofnanasamnings þar sem það á við.
- Fylgjast með nýráðningum og uppsögnum.
- Sækja fundi trúnaðarmannaráðs, en í því sitja allir trúnaðarmenn Sameykis
- Sækja fræðslu trúnaðarmanna.
Trúnaðarmenn eru tengiliður milli Sameykis og félagsfólks á vinnustað og þurfa að gæta þess m.a. að kjarasamningar séu haldnir og að réttur starfsfólks sé virtur. Þeir eru til aðstoðar ef og þegar upp rís ágreiningur um samningsbundin kjör starfsfólks, hvort sem óskað er af starfsfólki eða atvinnurekanda.
Trúnaðarmenn eru fulltrúar stéttarfélagsins úti á vinnustöðum. Þeir standa þó aldrei einir því stjórn og starfsfólk félagsins eru þeim til stuðnings við að leysa úr vanda sem upp kann að koma og heyra undir starfssvið félagsins. Ef ágreiningur kemur upp getur það falið í sér að trúnaðarmaður þarf að kynna sér málavexti til þeirra sem málið varða, taka við athugasemdum/ábendingum samstarfsfólks og krefjast úrbóta ef í ljós kemur að brotið er á samstarfsmanni. Trúnaðarmaður getur óskað eftir aðstoð starfsfólks Sameykis ef lausn næst ekki á vinnustaðnum.
Trúnaðarmannaráð
Trúnaðarmenn ásamt stjórn Sameykis mynda Trúnaðarmannaráð Sameykis. Að jafnaði eru fundir Trúnaðarmannaráðs haldnir í hverjum mánuði yfir vetrartímann.
Hlutverk Trúnaðarmannaráðs er að fjalla um þau málefni á fundum sínum sem snerta vinnu og aðstöðu trúnaðarmanna í störfum sínum ásamt fræðslu um þau þjóðfélagsmál sem hæst ber hverju sinni og að gagni koma í störfum trúnaðarmanna. Einnig er það hlutverk Trúnaðarmannaráðs að fjalla um kjara- og réttindamál félagsfólks, sérstaklega þegar gera á almenna kjarasamninga. Formaður félagsins er jafnframt formaður Trúnaðarmannaráðs.
Trúnaðarmannaráð skal vinna að stefnumótun fyrir félagið í samráði við stjórn og annast undirbúning fyrir aðalfund félagsins, þar á meðal að kjósa uppstillingarnefnd og laganefnd þegar það á við. Á fundum Trúnaðarmannaráðs skal m.a. gerð grein fyrir fjárhagsstöðu sjóða félagsins og lögð fram skýrsla yfir starfsemina einu sinni á ári. Trúnaðarmannaráð skal ákveða hvaða fastanefndir skulu starfa, setja þeim reglur og kjósa í þær. Trúnaðarmannaráð getur einnig stofnað aðrar nefndir eða vinnuhópa innan félagsins í kringum sérstök verkefni. Trúnaðarmannaráð skal fjalla um kjara- og réttindamál og annast undirbúning kjarasamninga.
Hvað þarf trúnaðarmaður að hafa til að bera?
Góður trúnaðarmaður þarf fyrst og fremst að hafa áhuga á vellíðan og starfsöryggi félaga sinna. Hann þarf að vera vakandi fyrir vinnuumhverfinu og eiga gott með mannleg samskipti, hafa ríka réttlætiskennd, eiga auðvelt með samstarf og vera óhræddur við að axla ábyrgð.
Vinnustaðir félagsfólks Sameykis eru sumir stórir og starfsfólk sinna ólíkum störfum. Til þess að rödd sem flestra heyrist í Trúnaðarmannaráði félagsins er nauðsynlegt að starfsfólk úr ólíkum starfsgreinum gefi kost á sér til trúnaðarstarfa. Kjörinn trúnaðarmaður þarf því að þekkja til sem flestra starfa á sínum vinnustað og vera í góðu sambandi við félaga sína.
Þeir sem sinnt hafa trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög þekkja það að sú reynsla nýtist þeim ekki síður vel í starfi. Þekking á málefnum starfsfólks, leikni í mannlegum samskiptum og reynsla af samstarfi við lausn verkefna á sviði starfsmannamála er mjög verðmæt.
Sameyki stefnir að því alla daga að efla félagið í baráttunni fyrir bættum kjörum og auknum réttindum félagsfólks. Vinnumarkaðurinn er að breytast og hlutverk trúnaðarmanna verður sífellt meira og mikilvægara.
Í stafi trúnaðarmannsins felst ábyrgð og flestir sem taka hlutverkið að sér upplifa að það sé gefandi, fræðandi, ýti undir samkennd, samstöðu og efli einstaklinginn. Mikilvægt er að trúnaðarmenn séu meðvitaðir um að það er ekki gerð sú krafa að þeir viti allt og kunni allt. Þeir þurfa hins vegar að vita hvert á að leita eftir upplýsingum. Trúnaðarmenn geta alltaf leitað til félagsins, starfsfólks eða stjórnar ef þá vantar upplýsingar eða eru í vafa um einhver atriði. Eindregið er mælt með því að trúnaðarmenn fari á þau námskeið sem boðið er upp á til að þeir verði betur í stakk búnir til að sinna skyldum sínum.
Trúnaðarmannaráð
Trúnaðarmannaráð er myndað af öllum trúnaðarmönnum félagsins og stjórn. Hlutverk trúnaðarmannaráðs er að vera stjórn félagsins til stuðnings og afgreiðir það þau mál sem ekki þarf að leggja fyrir félags- eða aðalfund.
Heimilt er að stofna sérstakar deildir innan félagsins með þeim er vinna skyld eða sams konar störf eða störf sem krefjast hliðstæðrar menntunar. Hver slíkra deilda hefur rétt til að velja fyrir sína hönd tvo áheyrnarfulltrúa í Trúnaðarmannaráð.
Lög um stéttarfélög og vinnudeilur
Lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna