Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Kosning trúnaðarmanna

Allar upplýsingar um kjör trúnaðarmanna má finna á þessari síðu.
Halda áfram

Kosning trúnaðarmanna Sameykis
Kosið er í maí á oddatöluári til tveggja ára í senn. Hafa ber i huga að sá sem starfsfólk velur sér sem sinn trúnaðarmann er fulltrúi þeirra gagnvart atvinnurekanda. Kosning fer fram í samráði við Sameyki en trúnaðarmaðurinn fær staðfestingu á kjöri og umboð sitt frá félaginu.

Mikilvægt er að hafa trúnaðarmenn á öllum vinnustöðum. Á hverjum þeim vinnustað, þar sem fimm eða fleira félagsfólk Sameykis starfa, er félagsfólk hvatt til að kjósa sér trúnaðarmann. Í dag eru trúnaðarmenn Sameykis um 320 talsins. Allt félagsfólk í Sameyki getur boðið sig fram sem trúnaðarmann. Hlutverkið felur meðal annars í sér að gæta hagsmuna félagsfólks í Sameyki á vinnustaðnum, miðla upplýsingum á milli félagsfólks, gæta þess að kjarasamningar séu virtir og aðstoða í ágreiningsmálum.

Um er að ræða gefandi starf sem felur í sér tækifæri til að bæta við sig þekkingu og reynslu á sviði mannauðsmála. Einnig gefur það innsýn í rekstur vinnustaðar og starfsemi stéttarfélaga. Trúnaðarmönnum býðst að sækja ýmiskonar þjálfunarnámskeið sem nýtast þeim jafnt í leik og starfi. 

Kjörtímabili trúnaðarmannaráðs hófst 31.maí 2023 og stendur í tvö ár til 31.maí 2025.

 

Framkvæmd kosninga
Kjörgögn vegna kosningar trúnaðarmanna eru send til allra trúnaðarmanna í pósti í apríl á oddatöluári. Óski félagsfólk eftir sendingu getur það haft samband við skrifstofu Sameykis í síma 525-8330.

Fráfarandi trúnaðarmanni ber að skipa umboðsmann og hengja upp auglýsingu í sameiginlegu rými á vinnustaðnum um væntanlega kosningu með nafni umboðsmannsins. Auglýsinguna má einnig senda í tölvupósti til starfsfólks. Allt félagsfólk getur boðið sig fram til trúnaðarmanns en kosning fer fram á vinnustað ef fleiri en einn eru í framboði. Áhugasamir um starfið setja sig í samband við umboðsmann.

Kjörgögn vegna kosninga
Hér má finna kjörgögn vegna kosningar trúnaðarmanna fyrir kjörtímabilið 2023 - 2025:

 

Þegar búið er að kjósa trúnaðarmann skal senda tilkynningu um það til skrifstofu Sameykis. Það er mikilvægt að það sé gert með formlegum hætti.