Fjölmiðlatorg
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu var stofnað 26. janúar 2019 við sameiningu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu.
Félagið telur rúmlega 16.000 félaga. Um 65% eru konur og 35% karlar. Félagar starfa víða í almannaþjónustu. Stærstu vinnustaðirnir eru m.a. Landspítali, Strætó, fangelsin, Isavia, Orkuveitan, Skatturinn, leik- og grunnskólar, frístundaheimili, söfn, sambýli fatlaðra og sjálfseignarstofnanir í velferðarþjónustu.
Félagssvæði Sameykis er allt landið.
Stjórnendur
Kári Sigurðsson
formaður
Gunnsteinn R. Ómarsson
framkvæmdastjóri
Ljósmyndir af formanni Sameykis
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis (1) (JPG)
4,25 MB
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis (2) (JPG)
3,25 MB
Nafn og merki Sameykis
Heitið Sameyki er sjaldgæft en hljómfagurt íslenskt orð sem er gamalt í málinu. Orðið sameyki merkir teymi (e. team) og var sérstaklega notað sem slíkt áður en orðið teymi varð til í íslensku. Orðið sameyki stendur þannig fyrir samvinnu en er einnig notað yfir það þegar dýr eða vélar eru tengd saman til að draga þungt hlass. Merkingin vísar í styrk, samstarf og samstöðu og er lýsandi fyrir sameinað félag.
Sameyki var ein af 291 hugmynd sem send voru inn í samkeppni um nafn og höfundur þessa merkingarþrungna heitis er Margrét Högnadóttir sem er trúnaðarmaður hjá Ríkisskattstjóra.