Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Fulltrúaráð

Fulltrúaráðið vinnur m.a. að stefnumótun fyrir félagið í samráði við stjórn og annast undirbúning fyrir aðalfund félagsins ásamt því að fjalla um kjara- og réttindamál og annast undirbúning kjarasamninga.
Halda áfram

Fulltrúaráð Sameykis er skipað stjórn félagsins, formönnum sjóða félagsins og 90 fulltrúum sem kosnir eru af trúnaðarmannaráði á fyrsta trúnaðarmannaráðsfundi að hausti eftir kosningu á oddatöluári. Við kosningu fulltrúa í fulltrúaráð skal tryggt að lágmarki séu tveir fulltrúar frá eftirtöldum landshlutum: Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurandi eystra, Austurlandi, Suðurlandi og Reykjanesi. Einnig skal vera tryggt að eftirtaldar kjarasamningseiningar eigi að lágmarki tiltekinn fjölda fulltrúa í ráðinu, kjarasamningur ríkisins /sjálfeignarstofnanir, kjarasamningur sveitarfélaganna / sjálfseignarstofnanir, og kjarasamningur SA og annarra sem félagið gerir kjarasamning við.

Listi yfir fulltrúaráð Sameykis 2021-2023 er hér. Fulltrúaráðið var kosið á fundi trúnaðarmannaráðs 14. septenber 2021. 


Fundir fulltrúaráðs á vorönn 2022
Miðvikudaginn 19.janúar
Fimmtudaginn 31.mars
Þriðjudaginn 26.apríl


Formaður Sameykis er formaður fulltrúaráðs. Fulltrúaráðið vinnur að stefnumótun fyrir félagið í samráði við stjórn og annast undirbúning fyrir aðalfund félagsins, þar á meðal kýs fulltrúaráðið uppstillingarnefnd og laganefnd þagar það á við.  Á fundum fulltrúaráðs skal m.a. gerð grein fyrir fjárhagsstöðu sjóða félagsins og lögð fram skýrsla yfir starfsemina einu sinni á ári. Fulltrúaráð skal ákveða hvaða fastanefndir skulu starfa og setja þeim reglur og kjósa í þær.  Fulltrúaráð getur einnig stofnað aðrar nefndir eða vinnuhópa innan félagsins í kringum sérstök verkefni. Fulltrúaráð skal fjalla um kjara- og réttindamál og annast undirbúning kjarasamninga. 

 

Reglur um kosningu til fulltrúaráðs