Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Starfsreglur Háskóladeildar

Háskóladeild Sameykis er ætluð því félagsfólki sem lokið hafa háskólagráðu. Markmið hennar er að gæta hagsmuna háskólamenntaðs félagsfólks innan Sameykis og vera málsvari þess auk þess að standa fyrir fræðslu og gefa félögum tækifæri til að efla þekkingu sína. Vertu með.
Halda áfram

Starfsreglur háskóladeildar Sameykis

1. gr.

Rétt til aðildar að háskóladeild Sameykis – stéttarfélags í almannaþjónustu á það félagsfólk sem

er í háskólanámi eða hefur lokið námi á háskólastigi.

2. gr.

Deildin starfar í samræmi við ákvæði félagslaga Sameykis og samkvæmt gildandi starfsreglum.

3. gr.

Viðfangsefni deildarinnar skulu vera:

• að gæta hagsmuna háskólamenntaðs félagfólks innan Sameykis og vera málsvari þeirra

• að fjalla um hagsmuna- og sérmál er varða réttindi og kjör félagsfólks með háskólamenntun

• að halda uppi kynningar- og félagsstarfi með félögum innan háskóladeildarinnar


4. gr.

Umsókn um aðild skal berast skrifstofu Sameykis í gegn um vef félagsins. Nýir félagar öðlast félagsréttindi þegar við samþykkt umsóknar. Umsókninni skulu fylgja upplýsingar um menntun umsækjandans.

5. gr.

Stjórn deildarinnar skipa fimm aðilar, formaður og fjórir meðstjórnendur, er skulu kosnir úr hópi fullgilds félagsfólks deildarinnar á aðalfundi til þriggja ára í senn. Formann skal kjósa sérstaklega en fjórir meðstjórnendur og tveir varamenn skulu kosnir í einu lagi. Stjórnin skiptir með sér verkum og velur úr sínum hópi varaformann og ritara.

Stjórnarmönnum, að formanni meðtöldum, er ekki heimilt að sitja lengur samfellt í stjórn en tvö kjörtímabil (6 ár). Þótt stjórnarmaður, hafi setið í stjórn deildarinnar samfellt í 6 ár hefur það engin áhrif á þann tíma sem honum er heimilt að gegna formennsku.

Stjórn deildarinnar skilar ársskýrslu til stjórnar Sameykis á hverju ári.

Stjórn háskóladeildar Sameykis kýs úr sínum hópi tvo fulltrúa og tvo til vara sem eiga rétt til setu í trúnaðarmannaráði og fulltrúaráði félagsins.

6. gr.

Stjórnarfundi skal halda með reglulegum hætti að boði formanns eða samkvæmt ákvörðun stjórnar. Stjórnarfundir eru lögmætir ef minnst 3 mæta til fundar. Rita skal fundagerðir allra funda deildarinnar.

7. gr.

Á tímabilinu 1. mars til 15. maí skal halda aðalfund deildarinnar og skal til hans boðað með minnst

þriggja vikna fyrirvara. Aðalfund skal boða með auglýsingu á miðlum Sameykis og deildarinnar.

Eftirfarandi eru sérstök verkefni aðalfundar:


1.Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um starfsemina á síðastliðnu ári.

2.Breytingar á starfsreglum deildarinnar.

3.Kosið í stjórn

a.Kosning formanns

b.Kosning fjögurra meðstjórnenda

c.Kosning tveggja varamanna

4.Önnur mál.


8. gr.

Starfsreglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi deildarinnar og þarf 2/3 greiddra atkvæða til þess

að breyting öðlist gildi sem og samþykki stjórnar Sameykis.


Samþykktar á stofnfundi deildarinnar 4. apríl 2019

Breytingar samþykktar á aðalfundi 17. mars 2023