Lífeyrisdeild Sameykis
Rétt til aðildar að Lífeyrisdeild Sameykis hefur sá sem lýkur starfsævinni sem Sameykis félagi (SFR eða St.Rv.) og hefur að minnsta kosti samfellda aðild síðastliðin fimm ár áður en hann lauk störfum og fór á lífeyrir.
Sá sem óskar eftir aðild að Lífeyrisdeild og hefur ekki endað starfsævi sína sem félagi í Sameyki (SFR eða St.Rv.) verður að hafa lágmark 10 ár í félagsaldur og að hafa verið orðinn 60 ára þegar hann hætti sem félagi. Þetta er til að koma til móts við félagsmenn sem voru í störfum sem t.d. hafa verið lögð niður. Almennt skal miða við að félagsmenn skrái sig í lífeyrisdeildina innan 10 ára frá því þeir fara á lífeyrir. Þeir sem áður voru skráðir í Eftirlaunadeild St.Rv. og Lífeyrisdeild SFR halda sinni félagsaðild. Þegar öllum launagreiðslum er lokið frá vinnuveitanda er hægt að skrá sig í deildina.
Öryrkjar eiga rétt á að sækja um aðild að lífeyrisdeildinni ef þeir fá örorkulífeyrir frá lífeyrissjóði, enda stundi þeir ekki launaða vinnu. Öryrkjar skulu senda inn staðfestingu frá lífeyrissjóði um að þeir fái örorkulífeyrir.
Ef upp koma vafaatriði varðandi rétt til aðildar tekur stjórn Sameykis afstöðu til þeirra.
Það þarf að sækja formlega um aðild að Lífeyrisdeildinni í félaginu. Félagsmenn í deildinni greiða ekki félagsgjöld, en njóta ýmissa réttinda s.s.:
- að leigja orlofshús og annað sem orlofssjóður býður upp á sjá orlofsvef
- að fá styrk úr Símenntunarsjóð Lífeyrisdeildar Sameykis
- að taka þátt í námskeiðunum Gott að vita á vegum félagsins sjá námskeið
- þátttaka í ýmsum uppákomum á vegum Menningar- og skemmtinefndar t.d., jólaball, aðventukvöld og bingó.
- fá blað stéttarfélaganna heimsent,
Stjórn lífeyrisdeildar Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu skal heimilt að tilnefna úr sínum hópi 14 fulltrúa í trúnaðarmannaráð.
Stjórn Lífeyrisdeildar hefur skipulagt í samstarfi við stjórn og starfsfólk ýmsar uppákomur sérstaklega ætlaðar félögum í deildinni s.s. sumarferðir, haust og vorfagnaði.
Ég vil skrá mig í deildina: